Tengdar greinar

Hversu oft eigum við að fara í bað?

Að fara daglega í sturtu, þykir jafn sjálfsagt og drekka morgunkaffið eða bursta í sér tennurnar. En það gæti verið ástæða til að láta af þessum ávana, ef marka má álit sérfræðinga.

Þannig hljóðar upphaf greinar eftir Helen Wolfe á vefnum considerable.com. En greinin fer hér á eftir í lauslegri þýðingu Lifðu núna.

Um tveir þriðju Bandaríkjamanna fara daglega í stutru. Fólk heldur því fram að sturtan hjálpi þeim að vakna almennilega og koma kollium í gang, sérstaklega eftir líkamsþjálfun eða áreynslu og ef það er heitt og rakt veður.

Þegar kemur að því að bæta heilsuna, er hins vegar hreint ekki víst að dagleg sturta skipti miklu máli, segir Dr. Robert Shmerling, við læknadeild Harvard háskóla. „Satt að segja getur það jafnvel verið slæmt fyrir heilsuna að fara í sturtu á hverjum degi,“ segir hann.

Það eyðir rakanum úr húðinni að þvo sér og skrúbba á hverjum degi, hún getur orðið þurr og menn geta fundið fyrir kláða  segir í greininni. Þetta eigi sérstaklega við um eldra fólk, en húðin verði þynnri með aldrinum, tapi raka og verði viðkvæmari. Bakteríur eigi greiðari aðgang í gegnum þurra og sprungna húð og geti valdið sýkingum og ofnæmisviðbrögðum.

„Ég held að sturtuböð séu aðallega spurning um útlit“ segir Dr. Elaine Larsson við hjúkrunarskólanum í Columbía háskólanum. „Fólk heldur að það baði sig til að verða hreinna, en ef horft er á bakteríuflóruna, er sú alls ekki raunin. Dagleg sturta getur dregið úr náttúrulegum vörnum húðarinnar, þannig að hún verði viðkvæmari fyrir bakteríum og vírusum.

Dr. Jennifer Hermann, sérfræðingur í húðsjúkdómum er sammála Larson og Shmerling. „Húðin er svipt sínum eðlilega raka og vörn“, segir hún. „Þetta veldur þurrki í húðinni og getur aukið á  húðvandamál eins og exem, rósroða og Psoriasis.

Vitnað er í það í greininni að sumir læknar telji að það styrki  ónæmiskerfi mannsins að komast í snertingu við örverur og óhreinindi. Stöðugar baðferðir yfir lengri tíma geti stuðlað að ýmsum sjúkdómum svo sem ofnæmi, astma og jafnvel sykursýki. Þá geti þær veikt ónæmiskerfið.

„Líkaminn er eins og vel smurð vél, segir Dr Brandon Mitchell aðstoðarprófessor við George Washington háskólann. „Ég held að flestir baði sig of mikið. Það er ekki nauðsynlegt að fara í bað daglega.  Mitchell mælir með því að fólk fari í bað eða sturtu einu sinni til tvisvar í viku og almennt segja sérfræðingar að það sé yfrið nóg að fara í bað nokkrum sinnum í viku, í stað þess að fara daglega. Mælt er með því að fara í volga og stutta sturtu. Of mikið vatn, sér í lagi heitt vatn þurrki húðina.

Hermann segir líka að það sé skynsamlegt að baða sig minna á veturna en á öðrum árstímum. „Loftið er þurrara og húshitun meiri yfir vetrarmánuðina og þá verður húðin þurrari. Ef menn fara oft í bað, verður þurrkurinn meiri og ástand húðarinnar versnar“.

En það getur verið erfitt að hætta að fara í sturtu daglega. „Þetta er orðið  hluti af lífinu og er ekki lengur eitthvað sem menn geta valið um“, segir félagsfræðingur við Háskólann í Lancaster sem hefur rannsakað hvernig menn nota vatn. „Hvernig ætli standi á því að svona margt fólk, helli yfir sig þessum kynstrum af vatni á hverjum degi, til að fjarlægja örlítil óhreinindi af líkamanum og hvernig ætli standi á því að menn geri þetta reglulega? Það er mjög undarlegt ef við hugsum um það“, segir hún.

Ritstjórn júlí 6, 2022 07:07