Draumar eru merkilegir og eitt af þeim fyrirbærum sem hafa valdið mönnum heilabrotum frá örófi alda. Margir trúa því að draumar sendi okkur skilaboð af margvíslegum toga, m.a. vari við hættu, gefa vísbendingar um hvort einhver ákvörðun sé rétt, hjálpi til við úrvinnslu tilfinninga og sendi okkur svarið við einhverjum spurningum sem hafa leitað á okkur. Allt þetta kann að vera rétt en rannsóknir hafa sýnt að einir algengustu draumar manna snúast um að þeir séu aftur komnir í skóla og þar sé ýmislegt með öðrum brag en í raunveruleikanum.
Hvers vegna dreymir svo marga skólann? Jú, menntavegurinn hvort sem hann er langur, stuttur, auðfarinn eða torsóttur er einfaldlega stór hluti af ævi okkar. Við verjum okkar viðkvæmustu árum í skóla, þar myndum við flest okkar fyrstu og stundum dýpstu vináttubönd og þar mótumst við félagslega. Flestir læra þar að takast á við og yfirstíga erfiðleika hvort sem þeir tengjast námsefninu eða samskiptum. Þess vegna er ákaflega eðlilegt að hugurinn leiti reglulega aftur til námsáranna hvort sem við erum vakandi eða sofandi.
Í skóla upplifa margir kvíða í fyrsta sinn. Óttinn við að standa sig ekki falla á prófi fylgir stórum hópi fólks gegnum alla skólagönguna. Tæplega sextug kona segir: „Mig dreymir enn reglulega að ég sé kölluð til baka í gamla menntaskólann minn og mér sagt að eitthvað sé athugavert við eitt prófið sem ég tók og þar með sé öll mín menntun eftir það ógild. Mismunandi er hvernig þetta endar og oft óljóst. Ég man að stundum mótmæli ég og rífst við kennara eða rektor, ég hef líka heimtað að fá að sjá prófið og einu sinni endaði draumurinn á að ég var rekin út úr skólanum og stóð fyrir utan full af skömm og vanlíðan.“ Hún er ekki ein um að dreyma þennan draum. Hann er mjög algengur og ásækir fólk helst þegar það er undir álagi í vinnu eða hefur hugsað sér að breyta um kúrs í starfi.
Próf eru ákaflega táknræn
Karlmaður um sjötugt segir að sig dreymi reglulega að hann sé aftur kominn í skóla og eigi að fara að taka próf en viti að hann hafi enga kunnáttu. Hann er ekki einn um það því stór hópur Bandaríkjamanna sagði í nýlegri rannsókn að þeirra helsta martröð væri að dreyma að þeir hefðu fallið á prófi. Prófkvíðinn situr því í fólki langt fram eftir ævi.
Sérfræðingar segja að þetta sé eðlilegt því að í skóla upplifi börn í fyrsta sinn að þau þurfi að standa sig utan heimilisins. Fram að því er veröld þeirra bundin við fjölskylduna og í flestum tilfellum er mistökum þar vel tekið og auðvelt að leiðrétta þau. Í skólanum er hins vegar iðulega aðeins ein tilraun leyfð og nemendur vita að það þarf að læra undir próf til að standast þau. Það hefur áhrif á sjálfsmynd okkar og við tengjum próf við mat á eigin hæfileikum, teljum að þau sanni eða afsanni hæfni okkar og getu. Þess vegna eru þau ákaflega táknræn og leita inn í drauma okkar á margvíslega vegu.
Marga dreymir einnig oft að þeir séu aftur staddir inni í kennslustofu gamla skólans síns. Lexían sé að byrja eða í fullum gangi. Slíkir draumar koma oft á tímamótum í lífinu og gætu verið vísbendingar um að menn séu að vinna úr upplýsingum eða þeim atburðum sem eru í gangi í veruleikanum. Þeir gætu einnig verið að leita leiðsagnar og halda í vonina um að kennarinn hafi eitthvað fram að færa hvað það varðar. Aðra dreymir að þeir reiki eftir skólagöngunum í leit að kennslustofunni sinni en finni hana ekki. Hver hurðin á fætur annarri mætir þeim og þeir ýmist opna og sjá að þarna eiga þeir ekki að vera eða vita að þetta er ekki þeirra stofa. Sá draumir tengist að sögn sérfræðinga leit fólks að samastað í tilverunni, að viðkomandi sé ekki sáttur við hvar hann er og sé að leita að tilgangi eða þeirri tilfinningu að hann sé einmitt þar sem hann á að vera.
Draumar eru ofnir úr þráðum hversdagsins
Vísindamenn sem hafa sérhæft sig í draumum segja að þeir séu alltaf ofnir úr þráðum hversdagsins. Við verðum fyrir margvíslegum áhrifum yfir daginn og förum með þau inn í svefninn. Allt sem er að gerast í lífi þínu endurspeglast á einhvern hátt í því hvernig þig dreymir og hvað.
Suma dreymir fólk fremur en staði og gamli kennarinn, kærastan frá því gaggó eða strákurinn sem þú varst skotin í en vildi þig ekki dúkka upp. Stundum ertu skólaballi þegar það gerist, á gangi skólans eða á leið heim úr skólanum. Svo er allur gangur á hvernig samskiptin þróast. Kennarinn gæti skammað þig eða hrósað. Í sumum tilfellum er kærastan fráhverf þér eða enn ástfangnari en áður. Strákurinn gæti allt í einu sýnt þér áhuga eða verið þér andstyggilega vondur. Draumar af þessu tagi tengjast alltaf tilfinningalegu uppgjöri. Það kann að vera að núverandi sambönd manneskjunnar séu að rakna eða styrkjast og það birtist á sinn hátt í draumum næturinnar. Hver og einn verður að túlka sína drauma og ef menn telja að þar sé skilboð að finna er sjálfsagt að skrifa niður draumana og velta fyrir sér þeim táknum sem þar birtast.
Þeir eru til sem telja að draumar séu aldrei tilviljanakennt rugl. Þeir séu sprottnir úr undirdjúpum sálarlífsins og því beri ávallt að taka mark á þeim. Allt sem þig dreymir standi fyrir eitthvað, tákni eitthvað í þínum huga og þú þurfir að gera þína eigin draumráðningabók þar sem þau tákn eru ráðin. Þá má grípa til hennar í hvert sinn sem draumar taka að sækja á þig og skoða hvort verið sé að leiða þig áfram að niðurstöðu í erfiðum málum eða sýna hvernig þú getur tekist betur á við stress og álag í daglega lífinu. Kannski er líka verið að beina þér í rétta átt í samskiptum við einhvern af þínum nánustu. Ef draumar þínir eru erfiðir eða jafnvel martraðir mæla sérfræðingar með að tala um drauminn eða skrifa hann niður og breyta endinum þannig að hann sé hagfelldur þér. Það lagar í mörgum tilfellum tilfinningaleg áhrif draumsins og gerir hann þægilegri í huga þér.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







