Slysin gera ekki boð á undan sér 

„Spurningin er ekki í hverju maður lendir heldur hvernig maður tekur á hlutunum,“ er mottó Ingibjargar Óskar Jónsdóttur kennara sem hefur átt farsæla ævi en þó lent í fleiri óhöppum en margir aðrir. Hún segir að rétta hugarfarið og jákvæðni skipti öllu máli og með þá sannfæringu sé svo miklu léttara að komast í gegnum erfiðleika.  „Og ekki skemmir að hafa góða fjölskyldu og frábæra vini í kringum sig,“ segir hún sannfærandi. „Þegar upp er staðið er það sennilega mest áríðandi í öllu bataferli,“ bætir hún við.

Skíðaslysið fyrst

Barnabörnin leika stórt hlutverk í lífi Ingibjargar og Ólafs : Ingibjörg Stefanía, Sigurður Gísli, Hólmfríður Kristín og Ferdínand Flóki. Ljósmyndari:Ásta Einarsdóttir.

Slysasaga Ingibjargar hófst þegar hún var 39 ára gömul eða 1995. Þá lenti hún í skíðaslysi og þríbraut á sér fótinn, nýrað marðist, lendaliður aftan á baki brotnaði og tvö rifbein brotnuðu. Þetta reyndist vera fyrsta stóra slysið af mörgum en hér er Ingibjörg enn í dag og er nú að ná sér eftir allt annað slys.

Vildi hætta í kennslunni með stæl


Ingibjörg Ósk hefur verið kennari mestallan sinn starfsaldur að undanskildum sjö árum þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri fyrir kvikmyndafyrirtæki.  Hún er nú að láta af störfum eftir 23 ár í Verslunarskóla Íslands. Það kom reyndar ekki til af góðu að hún hætti nú í haust en hún hafði ætlað að starfa fram að áramótum eins og lög gerðu ráð fyrir og hætta svo með stæl en Ingibjörg verður sjötug í október. Hún hóf störf sem kennari í Fellaskóla eftir nám en þar kenndi hún í 3 ár og segir Fellaskólatímabilið hafa verið alveg sérstakt.  „Ég fæ hlýtt í hjartað þegar ég hugsa um Fellaskólann, bæði hvað varðar samstarfsmenn og nemendur,“ segir Ingibjörg. „Ég hef alltaf kennt unglingum og í Fellaskóla höfðu fram að þeim tíma eingöngu verið karlar í unglingadeildinni. Ég fór bara í klossa og óð um og kenndi krökkunum.“ Ingibjörg segir skellihlæjandi frá því að hún hafi á tímabili kennt unglingunum dönsku, íslensku og stærðfræði og krökkunum gengið vel í öllum fögum. „Þetta var mikið skemmtilegur tími,“ segir Ingibjörg og brosir af tilhugsuninni.  Eftir Fellaskólann fór hún í kvikmyndafyrirtækið og síðan í 10 ára í Hagaskóla og segir þann tíma hafa verið yndislegan. Síðan lá leið hennar út í Valhúsaskóla þar sem hún kenndi í 6 ár og þaðan í háskólann til að bæta við sig menntun.

Ætlaði alltaf að fara í hjúkrun  

Ingibjörg með bræðrum sínum: Ferdínand, Eiríki og Alfreð.

Ingibjörg segir að það hafi verið alger tilviljun að kennaranámið hafi orðið fyrir valinu á sínum tíma. „Mamma var hjúkrunarfræðingur af Guðs náð og tveir bræður mínir eru læknar svo mér þótti bara sjálfsagt að feta þá braut. Svo var ég að ganga í Stakkahlíðinni einn daginn og sé þetta stóra hús og hugsa: ,,Hvaða skóli er nú þetta?“. Þetta var þá Kennaraskólinn sem þá var verið að breyta í háskóla,“ segir Ingibjörg. Hún sótti um í Kennaraháskólanum og segir það hafa verið óskaplega gaman að taka þátt í breytingunum sem þá áttu sér stað. ,,Það var mikil og skemmtileg þemavinna í gangi í skólanum og þar var ég í þrjú yndisleg ár.“

Kennslan skemmtilegust

Mér hefur alltaf þótt mjög gaman að kenna hvar sem ég hef verið í kennslu. Starfið er svo gefandi fyrir þá sem njóta þess og ég er svo heppin að vera ein af þeim. Ég hef alltaf haft það að mottói að hrósa nemendum og fá það besta út úr þeim og það hefur tekist,“ segir Ingibjörg ánægð. Hún fullyrðir að það sé líka mjög gott að eldast sem kennari. „Mér finnst krakkarnir bera meiri virðingu fyrir aldri kennarans og mér hefur þótt ég þurfa að hafa minna fyrir kennslunni en þegar ég var yngri.“ Ingibjörg er þekkt fyrir að þekkja nemendur sína með nafni löngu eftir að þeir hætta hjá henni. Síðustu ár hefur hún oft kennt börnum gamalla nemenda sinna og þykir það mjög gefand. 

Brjóstakrabbamein bankaði upp á

Eiginmaður Ingibjargar er Ólafur Gunanrsson og hér eru þau hjónin með börnum sínum þeim Olgu Lilju og Jóni Gunnari.

Ingibjörg greindist með ágengt krabbamein 2014 en það uppgötvaðist þannig að hún sat með vinkonu sinni að spjalla um lífið og tilveruna. „Ég fann allt í einu að það kom hiti í hendina og ég lyfti henni upp og að brjóstinu. Ég hafði verið í brjóstaskoðun skömmu áður þar sem ekkert hafði komið í ljós. Þarna fann ég sjálf tvær kúlur í brjóstinu og hélt fyrst að þetta væri tognun í vöðva en þarna voru tvö æxli farin að vaxa og annað mjög ágengt. Ég hringdi strax í Krabbameinsfélagið til að panta tíma og þá sást strax að ég var nýbúin að vera í skoðun og það væri kannski ekki þörf á annarri skoðun strax. En úr varð að ég fékk að koma og þá komu þessi tvö æxli í ljós. Meinið var komið í eitla svo ég fór í aðgerð og meðferð, missti hárið og allt tilheyrandi. Og svo þegar ég var að ná mér af þeim hremmingum rann ég til á blautu gólfi og ökklabraut mig. Þetta var verulega viðburðaríkur tími sem ég vona að endurtaki sig ekki en reynslan kennir manni að allt getur gerst og eins gott að vera viðbúinn eins vel og hægt er. Í því sambandi er lykilatriði að hugsa vel um líkama sinn. Sú vísa er aldrei of oft kveðin,“ segir Ingibjörg ákveðin. „Og reyna að hafa jákvæðni að leiðarljósi, ef hægt er,“ bætir hún við.

Íþróttaslysið

Ingibjörg í golfi á Ekkjufellsvelli á Egilsstöðum í sumar.

Og svo fékk Ingibjörg enn eitt óvænta heilsuvandamálið í fangið. Hún hefur spilað golf í allmörg ár og notið þess mikils. Golfið hefur verið hennar leið til að vinda ofan af sér og hefur verið mikilvægur þáttur í lífinu. Hún spilar á hverjum morgni á sumrin og var stödd á golfvellinum síðla sumars. Hún var að klára níundu holu með besta skori sumarsins og var að skoða „bönkerinn“ sem golfkúlan hafði lenti í, rétt við pinnann. „Allt í einu svimaði mig, missti við það jafnvægið og skall þannig niður að fjórði

Ferðahópurinn: Ingibjörg, Anna Margrét, Hildur, Sonja, Ása Helga og Elfa

lendaliður féll saman,“ segir Ingibjörg og var þar með úr leik í bili.

Ætlaði að gera allt brjálað

„Ég var búin að ákveða að gera allt brjálað í skólanum í haust af því að þetta haust átti að vera það síðasti í Verslunarskólanum,“ segir Ingibjörg og skellihlær. „En svona er lífið og nú er þessi kafli bara búinn,“ bætir hún við. Ingibjörg viðurkennir samt að það hafi verið  leiðinlegt að hætta í veikindaleyfi. „Ég hafði ekkert val svo ég ákvað bara að snúa mér að öðru. Ég hef mörg áhugamál, á fjögur barnabörn og þar er aldeilis þörf fyrir mig svo að mér leiðist aldeilis ekki. Svo er sannarlega verðugt verkefni að styrkja líkamann til þess að ég geti nú notið áranna sem eftir eru,“ segir Ingibjörg og brosir.

Auglýsing

Er félagslynd og hefur þörf fyrir hreyfingu

Menningarklúbburinn: Elísa, Elsa, Ninny, Ingibjörg, Guðbjörg, og Margrét. 

Ingibjörg hefur alltaf verið mjög dugleg að hreyfa sig og gerir það fyrir líkama og sál. Það kemur sér vel núna þegar hún neyðist til að hægja á tímabundið vegna slyssins. „Fram að þessu hef ég farið mikið í ræktina úti á Seltjarnarnesi þar sem ég geri æfingar og syndi svo minnst einn kílómetra þegar ég fer í laugina. Nú má ég það ekki vegna slyssins en ég mun byrja aftur um leið og ég fæ grænt ljós,“ segir Ingibjörg. Hún má núna synda skriðsund 500 metra og gera æfingar í lauginni sem henni þykir mjög gott. „Svo hef ég alltaf gengið mikið, sem ég trúi að sé allra meina bót, fyrir líkama og sál. Áður gekk ég klukkutíma í senn en nú má ég bara ganga 2 X 15 mínútur í senn,“ segir Ingibjörg og brosir. „Ég á líka góðar vinkonur sem ég hef gengið mikið með en það er skemmtilegra að ganga með öðrum. Fram að „íþróttaslysinu“ fór ég að spila golf á hverjum einasta morgni úti á Seltjarnarnesi allt sumarið þegar veður leyfði. Þar hitti ég hóp skemmtilegra golfara, allt konur á mínum aldri. Við förum saman í golfferðir og njótum lífsins og samvista hver við aðra.“

Ingibjörg er líka í öðrum hópi sem hún kallar „menningarklúbb“. „Sá hópur fer saman í leikhús eða listsýningar og svo hittumst við og tölum um það sem við upplifum saman sem er ótrúlega áhugavert og hvetjandi,“ segir Ingibjörg og er þakklát fyrir lífið.

Ingibjörg er í skemmtilegum hóp sem kallast Mor-Violin og eru það mæður sem allar hafa verið með börnin í tónlistarnámi.  Við hittumst einu sinni í mánuði yfir vetrartímann, hver kemur með sinn rétt og sinn drykk og við spjöllum og hlæjum saman.

Ingibjörg hefur uppgötvað með aldrinum mikilvægi þess að reyna að dvelja í þakklæti.  Sem og það að veita öðrum umhyggju og reyna að þiggja umhyggju sem getur gefið lífsfyllingu og djúpa hamingju. 

Ganga er það besta sem hægt er að gera fyrir sig

Ingibjörg með dóttur sinni Olgu Lilju á Sólheimum þar sem þær voru á að læra Jóga Nidra.

Hildur og Ingibjörg í göngutúr þegar þær dvöldu á Heilsustofnuninni í Hveragerði.

Þegar Ingibjörg greindist með krabbameinið hringdi hún í bróður sinn sem er geðlæknir og bjó þá í London. „Ég sagði honum að nú hefði ég verið að greinast með brjóstakrabbamein og hvað ætti ég helst að gera? Hann sagði strax: „Farðu út að ganga systir mín og reyndu að ganga hraðar svo að þú hafir ekki tíma til að hugsa. Ég fór út á hverjum einasta morgni og gekk í rúman klukkustund og var með þessi skilaboð bróður míns hugföst. Ég studdi mig til að byrja með við veggi en fór út hvernig sem viðraði. Mér fannst ég lækna mig með göngunum og hugsaði ekki að ég væri með krabbamein heldur væri með mér kona, nokkurs konar fylgikona, sem væri með mér í lífinu þetta tímabil og væri hún með krabbameinið en ekki ég. Hins vegar bæri mér að annast hana eins vel og fallega og ég gæti.  Ég myndi segja við marga að ganga getur verið einhver sú mesta hjálp sem maður getur gert til að hjálpa sér sjálfur.  Þegar ég brotnaði núna í sumar var mikið frá mér tekið að geta ekki farið út að ganga,“ segir Ingibjörg og siglir hraðbyri áfram veginn með mottóið góða í farteskinu: „Spurningin er ekki í hverju maður lendir í  heldur hvernig maður tekur á því .“  Hún reynir að hafa hugfast að erfiðleikar geta verið  tæki í lífinu til
að vaxa og þroskast og að allt mótlæti verði auðveldara takist manni það.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.