
Pylsuskúrinn sem varð að allsherjar heilsuskúr þar sem fékkst hollustufæða og jógavörur. Systurnar ráku fyrirtækið þar í tæp fjögur ár eða þar til þær fluttu Systrasamlagið að Óðinsgötu 1.
Það var sumarið 2013 sem systurnar Jóhanna og Guðrún Kristjánsdætur sáu möguleikana í því að bjóða sund- og ræktarfólki úti á Seltjarnarnesi upp á eitthvað annað en pylsur að lokinni líkamsræktinni. Það var samt faðir þeirra, Kristján Jóhannsson heitinn, prentari og útgefandi, sem upphaflega kom auga á tækifærið sem fólst í skúrnum við sundlaugina. ,,Við vorum öll mikið í sundi og ræktinni og gengum fram hjá pylsuvagninum oft í viku,“ segja þær Guðrún og Jóhanna. ,,Pabbi hafði skynjað hugarheim okkar í nokkurn tíma en einmitt á þessum tímapunkti lágu leiðir okkar systra saman því Jóhanna hafði nýhætt hjá Heilsuhúsinu og ég hafði verið starfandi í blaðamennsku og síðustu sjö árin í Listahátíð,“ segir Guðrún. ,,Ég var byrjuð að hugsa hvað ég ætti að gera næst þegar pabbi segir einn daginn: ,,Heyriði stelpur, sjáið þennan kofa sem stendur þarna auður. Það þarf að gera eitthvað við hann.“ Pabbi var rosalegur Seltirningur og lét verkin alltaf tala. Hann hafði séð um bæjarblaðið í mörg ár og var mörgum hnútum kunnugur í bænum. Hann gekk síðan í málið, talaði við mann og annan og úr varð að við fengum að leigja skúrinn því til stóð að rífa hann. Þetta átti bara að vera gjörningur til eins sumars en hér erum við enn,“ segja þær systur og brosa.
Eru ekki grænmetisætur
Þær systur eru ógiftar en eiga hvor sitt barnið, Jóhanna strák og Guðrún stelpu sem hafa bæði hafa tekið þátt í uppbyggingu Systrasamlagsins sem þær eru sammála um að sé búið að vera ómetanlegt.

Jóhanna helsar ungum viðskiptavini á opnunardegi Systrasamlagsins sumarið 2013.
„Þessi vegferð hefur verið erfið en skemmtileg. Við höfum alveg spurt okkur nokkrum sinnum hvort þetta sé nokkuð að ganga hjá okkur því að stofna og reka fyrirtæki er ekkert gamanmál. Svo lentum við í því að Óðinsgatan var grafin þannig að fólk átti í erfiðleikum með að koma til okkar í langan tíma og það hjálpaði ekki nýstofnuðu fyrirtæki. En með mikilli vinnu hefur þetta gengið,“ segja þær. Þær hugsa eðlilega mikið um það sem þær láta ofan í sig og segjast borða allt. Þær gæta þess þó alltaf að grænmeti stærsti hluti máltíða og leggja áherslu á að allt hráefni sé gott og eins hreint og frekast er kostur.
„Við verjum báðar miklum peningum í mat, þ.e.a.s. í gott hráefni sem kostar meira. Það er okkar lífsstíll og það gerum við frekar en að eiga stór hús eða stóra bíla,“ segja þær brosandi.
Fengu upphringingu frá öðrum bæjarfélögum
Systurnar ákváðu strax að taka ,,andann með í efnið“ þegar þær stofnuðu Systrasamlagið en það er einmitt hugmyndafræði Systrasamlagsins. ,,Að hafa andann með í efninu tengist því að njóta lífsins og nærast vel,“ segja þær.
Það var svo 15. júní 2013 sem pylsuskúrinn var opnaður á ný og nú voru skilaboðin önnur. Þær voru búnar að breyta skúrnum í lítinn kaffistað þar sem hægt var að kaupa búst, croissant og samlokur. ,,Við skárum lúguna út sem hafði verið á sjoppunni svo fólk gæti gengið inn þar sem mætti fólki holl næring, jógadýnur og svo bættist við jógafatnaður og vítamín.“ Viðskiptavinir þeirra voru oftast að koma úr einhvers konar líkamsrækt og þær segja að það hafi verið hvetjandi fyrir þær að heyra að fólkið hafi horft á þennan litla skúr þar sem þau voru á hlaupabrettinu og hlökkuðu til að geta keypt sér hollt búst eða góðan kaffibolla. „Þetta sama fólk saknar okkar vissulega því við trúum því að slíkur staður sé meira viðeigandi en pyslusjoppa við líkamsræktarstöð.“ Þarna voru systurnar í næstum fjögur ár og reyndu mikið að fá að halda starfseminni áfram og byggja nýjan skúr. „Það var komið á plan hjá bænum að rífa skúrinn og það var ekki tauti við þá komandi. En síðan var svo fallegt að við fengum símhringingu frá bæjarstjórum Garðabæjar og Hafnarfjarðar þar sem þeir óskuðu eftir að við flyttum starfsemina í þeirra bæjarfélag. Okkur þótti mjög vænt um það. En þá kom kunningjakona okkar og spurði okkur hvort við hefðum áhuga á að flytja starfsemina niður á Óðinsgötu 1 þar sem hún var að standsetja hús og við ákváðum að taka því tilboði. Auðvitað tók tíma að venja viðskiptavini við nýja staðsetningu, sérstaklega þegar við þurftum líka að kljást við uppgröft Óðinsgötunnar líka en þetta tókst. Auðvitað með gífurlegri vinnu en puðið er að skila sér,“ segja þær systur og eru mjög ánægðar með hvernig hugmyndafræði þeirra hefur verið tekið.
Jóga og hugleiðsla viðurkenndur lífsstíll
Í Systrasamlaginu er hægt að koma í hugleiðslu á föstudagsmorgnum klukkan 10 en þær segja að stór hópur hugsi nú orðið meira um heilsuna en áður og þar segja þær að covid hafi breytt viðhorfi margra. „Sem betur fer eru fleiri farnir að taka ábyrgð á eigin heilsu,“ segja systurnar. „Við höfum fengið viðskiptavini sem hafa sagt okkur frá því að læknir þeirra hafi sagt þeim frá okkur og ráðlagt að koma og fá hjá okkur alls konar bætiefni. Þetta gleður okkur mjög og segir að læknar séu farnir að átta sig á mikilvægi þess sem við stöndum fyrir. Geðlæknir, sem var að fást við líðan unglings, ráðlagði honum til dæmis að prófa að taka ákveðna jurt sem fengist í Systrasamlaginu svo við finnum að það er sannarlega meiri meðvitund lækna um valkosti við hefðbundin lyf.

Skemmtileg skilaboð eru á veggjum kaffihússins.
Að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft
Guðrún segist hafa verið að horfa yfir öxlina á systur sinni í langan tíma og fengið að lokum bót meina sinna með því að hlusta á það sem náttúrulækningarnar sögðu. ,,Ég var tilbúin að prófa aðrar leiðir áður en ég tæki hefðbundnu lyfin sem mér hafði verið ráðlagt að taka við magaveseninu sem ég var að kljást við,“ segir hún.
Með aðstoð Jóhönnu komst Guðrún að því að hún var með mjólkuróþol. ,,Það var orðið ljóst að ég þoldi ekki mjólk og þá voru góð ráð dýr því mjólkurvörur höfðu verið stór hluti af fæðu minni eins og svo margra. Ég þurfti til dæmis að fá mitt kaffi við skriftirnar og ég notaði mjólk út í það. Þá var sojamjólk komin á svæðið og ég gat skipt kúamjólkinni alveg út og eftir nokkurn tíma hafði ég losnað við magaverkinn. Hallgrímur Magnússon læknir flutti svo í sömu götu og foreldrar okkar og auðvitað smituðumst við líka af hans lífsviðhorfi en Jóhanna hafði þó starfað í Heilsuhúsinu löngu fyrir þann tíma. Allt kom þetta saman til að aðstoða okkur í nýrri vegferð,“ segja systurnar.
„Við ráðleggjum fólki oft að fara til læknis og láta mæla sig og koma svo til okkar. Við viljum auðvitað ekki taka ábyrgð á sjúkdómum en okkar nálgun getur sannarlega hjálpað, til dæmis þegar fólk þarf að taka mikið af lyfjum því mörg þeirra eyða nauðsynlegum efnum úr líkamanum og þá er betra að taka vítamín inn samhliða.“
Hreyfing, mataræði og andleg heilsa
Jóhanna segir að þegar hún hafi verið að byrja í þessum fræðum hafi verið talað mest um hreyfingu og mataræði til að halda góðri heilsu. Nú sé vitað að andlega heilsan sé ekki síður mikilvæg. „Þegar fólk kemur til okkar í mikilli streitu ráðleggjum við þeim sannarlega að prófa Joga Nidra. Streita kemur nefnilega í veg fyrir að líkaminn geti sjálfur tekið við og lagað það sem aflaga fer og jóga er því sannarlega undirstaða vellíðunar.
Tenging við náttúruna

Inn af verslun Systrasamfélagsins er gengið inn á lítið kaffihús og út á útisvæði þar sem notalegt er að sitja, alltaf nema þegar rignir.
„Á föstudögum kl. 10 höfum við líka boðið upp á fría hugleiðsluíma sem Thelma Björk Jónsdóttir hefur leitt og með henni er stundum Edda Björgvinsdóttir leikari. Þetta höfum við boðið upp á frá 2017 og er okkar framlag til betri líðanar þeirra sem sækja okkur heim. Þessum jógatímum er líka streymt svo fleiri geti notið.“
Tilgangurinn ekki að safna auði
Guðrún og Jóhanna eru með alveg sömu gildi í lífinu en eru samt ólíkar. Þær komu hver úr sinni áttinni þegar faðir þeirra leiddi þær saman í þessu merkilega fyrirtæki. Eitt af því sem þær leggja mikla áherslu á er að allt sem þær selji sé hreint og lífrænt. „Tilgangurinn hjá okkur er ekki að „besta okkur“ frá ári til árs heldur að reka fyrirtæki sem gengur vel svo við höfum í okkur og á því það dugar okkur alveg. Það er ekki í lagi að krafan um að stækka sífellt og selja meira sé aðalatriðið. Við verðum að staldra við og skoða hvað er þess virði að verja dýrmætum tíma sínum í.“
Gjörunnar vörur
„Við vitum núna að við eigum öll að minnka neyslu gjörunna matvara því búið er að sanna að þær eru ekki góður fyrir okkur en það eru líka til gjörunnin vítamín. Það eru vítamín sem í er blandað efnum til að gera þau auðveldari og ódýrari í framleiðslu.“
Þær systur komu sér í samband við fyrirtæki sem heitir Viridian og segja að allt sem þeir framleiði sé unnið með ráðleggingum frá vísindamönnum. „Vítamín frá þeim eru ekki með aukaefnum til að gera þau ódýrari í framleiðslu og þess vegna borgar fólk heldur meira fyrir þau. Við seljum vörur okkar ekki í stórmörkuðum því það hefur ekkert upp á sig að stilla dýrari vöru upp við hlið ódýrari nema henni fylgi útskýringar og fræðsla. ,,Allt kostar sitt en við erum sannfærðar um að þessi valkostur verði að vera til á markaðnum,“ segja þær og eru ánægðar með að þrátt fyrir hrakspár peningaafla hafi fyrirtæki þeirra gengið.
Frægir sækja Systrasamlagið heim

Pierce Brosnan og eiginkona hans Keely Shaye Smith komu í kaffihús Systrasamlagsins í Íslandsheimsókn sinni.
Systurnar segja að augljóslega hugsi stórir hópar fólks meira um leiðir til að halda líkamanum í góðu formi en aðrir og þar í hópi séu leikarar og annað listafólk, bæði íslenskt og erlent. Það fólk segja þær að séu tíðir gestir Systrasamlagsins og rifja upp stundina þegar Pierce Brosnan og eiginkona hans voru allt í einu stödd í kaffihúsi þeirra. ,,Það var einstaklega ánægjuleg stund. Fólk sem er vant því að aðrir standi á öndinni og stari á það kann að meta rólegheitin og venjulegheitin á litlu íslensku kaffihúsi. Þegar hjónin komu inn voru tvær litlar stelpur staddar á kaffihúsinu með foreldrum sínum og allt í einu byrjuðu þær að syngja lag úr kvikmyndinni Mamma Mia sem þær höfðu greinilega nýverið séð og Brosnan leikur aðalhlutverkið í. Honum þótti vænt um að sjá að þessi aldurshópur hefði lært lög úr myndinni og tók undir með þeim,“ segja þær hlæjandi.
Hagvöxtur verður að vera mælanlegur á mannlega vellíðan
Guðrún segir frá heimildaþáttum sem er að finna á Sarpi RÚV og fjalla um Bútan, land sunnan við Tíbet. „Þar hefur fólk komist að því að hamingja verði að vera hluti í hagvexti,“ segja þær systur. „Bútan er ekki ríkt land en þar er lögð mikil áhersla á hamingju og velferð þegnanna. Katrín Jakobsdóttir var búin að átta sig á því að hagvöxturinn yrði að vera mælanlegur á mannlegri vellíðan líka og vonandi átta fleiri stjórnmálamenn sig á þessu mikilvæga atriði,“ segja þessar kraftmiklu systur sem hafa helgað líf sitt boðskapnum um mikilvægi þess að hjálpa líkamanum til að hjálpa sér sjálfur og taka andann alltaf með í efnið.
Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.







