Þjóðdansasýning – Norræna þjóðmenningarmótið ISLEK

Í sumar verður haldið upp á hálfrar aldar afmæli ISLEK – norræns þjóðdansamóts sem hefur sameinað dansáhugafólk frá Norðurlöndunum allt frá árinu 1975.

Í ár fer mótið fram í níunda sinn, en laugardaginn 19. júlí munu þjóðbúningaklæddir gestir frá Grænlandi, Íslandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi stíga þjóðdansa víðsvegar um safnsvæði Árbæjarsafns.

Frá 14:00 til 16:00 munu gestir og gangandi geta notið þess að sjá fjölbreytta dansa og litríka búninga sem endurspegla menningararf Norðurlandanna.

Verið öll velkomin!