Tillaga að ferðasjúkrakassa

Magnús Sigurðsson lyfjafræðingur skrifar grein um ferðaskjúkrakassa á vefinn Fittofly. Hann segir; Þegar farið er í ferðalag er mikilvægt að taka með einhverskonar ferðasjúkrakassa eða ferðaapótek. Það sem fer í sjúkrakassann þarf að taka mið af því hvert er verið að ferðast, hversu lengi og þarfir hvers einstaklings.

Það fyrsta sem þarf að gæta að er að geyma nauðsynleg lyf sem notuð eru daglega í handfarangri,  EKKI  setja þau ofan í ferðastöskuna. Taskan gæti óvart tapast og þá getur verið erfitt að fá lyf í tæka tíð. Það verður þó að gæta þess að vera ekki með mikið magn vökva, ef lyf eru í vökvaformi.

Tillaga að ferðasjúkrakassa

  • Plástur
  • Hælsærisplástur
  • Sáraumbúðir
  • Sótthreinsandi þurrkur á sár
  • Skæri og flísatöng
  • Verkjatöflur
  • Hálstöflur
  • Ferðaveikitöflur
  • Stoppandi töflur við niðurgangi
  • Ofnæmistöflur við hvers kyns ofnæmi
  • Nefdropar fyrir flugið
  • Augndropar
  • Salt og glúkósa við vökvatapi
  • Sýrubindandi lyf við brjóstsviða
  • Vörn gegn flugnabiti
  • Áburð á skordýrabit, „afterbite“ eða annann áburð.

Ef ferðinni er heitið til landa þar sem hætta er á malaríu þarf einnig að hafa með sér. Malaríulyf eru lyfsseðilsskyld og er því best að snúa sér til læknis, áður en ferið er af stað. Svo er að muna að muna að athuga hvort að það þurfi að fara í bólusetningar áður en farið er í fríið. Upplýsingar um það er sömuleiðis hægt að nálgast á vefnum Fittofly. 

 

Ritstjórn ágúst 8, 2019 09:50