Einn skarpasti lögfræðingur sögunnar

Ruth Bader Ginsburg lést 18. september árið 2020. Hún var 87 ára gömul enn starfandi dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna og ekki nóg með heldur var hún framsæknasti og frjálslyndasti dómarinn við þann sama dómstól. Ríkissjónvarpið sýndi nýlega kvikmynd byggða á fyrstu árum Ruthar í faginu, Á grundvelli kynferðis. Hún barðist alla ævi fyrir mannréttindum og jafnrétti. Hún var fullkomlega sannfærð um að ákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna ættu að gild hvar í stétt sem menn stæðu, hvers kyns þeir væru og hver sem hörundslitur þeirra væri.

Auglýsing

Hún fæddist inn í heim þar sem óþarfi þótti að mennta konur og ef þær ákváðu að ganga menntaveginn var lítið pláss fyrir þær á vinnumarkaði. Flestar hættu einnig hvort eð var þegar þær giftust og eignuðust börn. Ruth var ekki þeirrar gerðar. Hún lauk laganámi með láði frá Harvard og Columbia þrátt fyrir að eiga litla dóttur og eiginmann sem barðist við krabbamein á námstímanum.

Hún var skarpgreind, vinnusöm, rökföst, djúpt hugsandi og vandvirk. Margir af helstu lögspekingum heims voru fullvissir um að hún væri meðal hæfustu lögfræðinga allra tíma. Hún var skipuð í hæstarétt af Bill Clinton árið 1993 og var þyrnir í augum Donald Trumps, enda vart hægt að hugsa sér ólíkari viðhorf til réttlætis og hjá þeim tveimur.

Ruth með dóttur sinni, Jane.

Farsæl í starfi

Áður en hún varð dómari hafði hún átt langan og farsælan feril sem lögfræðingur. Það þótti enginn betri en hún í að leggja upp mál og skipuleggja vörn eða sókn. Öll hennar mál snerust hins vegar um að þoka áfram kvenréttindabaráttunni og árétta að misrétti mætti aldrei líða hvar sem það birtist. Eftir að hún tók sæti í hæstarétti breyttist samsetning dómara þar á þann veg að æ fleiri þeirra voru íhaldsamir og til hægti í stjórnmálum. Ruth varð hins vegar því vinstrisinnaðri og staðráðnari í að standa á móti þeim eftir megni. Hún neitaði að hætta að vinna og barðist fyrir að stjórnarskráin væri virt til hins ýtrasta.

Ruth fæddist í Flatbush í Brooklyn 15. mars 1933. Foreldrar hennar voru gyðingar og Celia, móðir hennar, var austurísk að uppruna og bráðgreind. Hún hafði ekki fengið tækifæri til að menntast en var mikil kvenréttindakona og ákveðin í að dóttir hennar myndi njóta alls þess sem hún sjálf hafði þurft að fara á mis við. Draumur hennar náði á hinn bóginn ekki lengra en svo að hún vildi að Ruth lærði til kennara. Celia kunni einnig vel við að stelpan sýndi strax að hún væri bæði viljasterk og ákveðin. Samband mæðgnanna var mjög náið og það var Ruth mikið áfall þegar hún dó úr krabbameini þegar dóttirin var aðeins sautján ára.

Þegar hún dó varð Ruth enn ákveðnari en áður í að afla sér menntunar og nýta öll tækifæri til að láta hæfileika sína skína. Henni fannst sorglegt að móðir hennar hefði þurft að gefa alla sína drauma upp á bátinn og var harðákveðin í að sjá til þess að aðrar konur neyddust ekki til hins sama. Ruth komst inn í hinn virta Cornell-háskóla þar kynntist hún Martin D. Ginsburg og þau giftust. Dóttir þeirra, Jane,  fæddist þegar Ruth var 23 ára. Hjónin sóttu bæði um í lagadeild Harvard-háskóla og komust inn. Þrátt fyrir að hafa smábarn að hugsa um sló Ruth ekki af í náminu. Hún varð aðalritstjór Harvad Law Review og ávallt hæst í sínum bekk. Hún var í hópi fyrstu níu kvennanna til að komast inn í skólann en samnemendur þeirra voru 500 karlmenn. Rektor bauð þeim í mat, eins og sést í kvikmyndinni, Á grundvelli kynferðis, og þar eru þær látnar standa upp ein af annarri og réttlæti að þær hafi tekið pláss frá karlkyns nemanda. Þessi sami rektor bauð Ruth síðar að hann myndi mæla með henni í lagaritara starf á stofu eftir útskrift.

Ruth í upphafi ferilsins.

Erfið staða á vinnumarkaði

Eftir útskrift gekk hún milli lagafyrirtækja með próf og ferilskrá sem allir hefðu alla jafna stokkið á en í hennar tilfelli fundu menn sér þess í stað alls konar afsakanir fyrir því að ráða hana ekki. Þá var löglegt að neita hæfum manneskjum um vinnu á grundvelli kynferðis. Sú staðreynd að slíkt er ólöglegt í dag er að stórum hluta Ruth að þakka og sá sigur hennar hafði áhrif um allan heim, líka hér á landi. Ekki er langt síðan að atvinnuauglýsingar tiltóku hvaða kyn vinnuveitandinn vildi ráða í starfið. Vinnuveitendur hikuðu ekki við að segja konum að þær fengju ekki starf eða stöðuhækkun vegna þess að þær væru ekki fyrirvinnur, líklegar til að eiga börn eða ekki eins hæfar og karlar. Það mátti líka segja ófrískri konu upp starfi sínu fyrir það eitt að dirfast að ganga með barn.

Ruth átti tvo börn, dóttur og son en hún var alla tíð útivinnandi.

Já, Ruth Bader Ginsburg var einstök manneskja með sterka réttlætiskennd og ódrepandi baráttuvilja. Hún var ein af þeim sem hrundu af stað, the ACLU’s Women’s Rights Project. árið 1972, sama ár var hún ráðin prófessor við lagaskóla Columbia-háskóla. En ACLU gekk út á að gefa fólki sem brotið hafði verið á grundvelli kyns tækifæri til að fá leiðréttingu sinna mála. Aðeins tveimur árum síðar hafði ACLU átt aðild að og sótt meira en 300 mál vítt og breitt um Bandaríkin en það sýnir þörfin. Sjálf sótti Ruth sex þessara mála við dómstóla sem skipaðir voru eingöngu körlum og vann fimm þeirra. Það fordæmi sem hún og samstarfsfólk hennar náði þarna fram varð til þess að breyta varanlega dómafordæmi í þessu risastóra landi og áhrif þess seytluðu fljótt yfir til annarra vestrænna ríkja.

Í raun er ómögulegt að meta til fulls hversu mikið þessi einstaka kona náði að áorka. Sjálf var hún einstaklega hógvær og gerði ævinlega lítið úr afrekum sínum en gat aldrei lagt nægilega mikla áherslu á að allir ættu skilið að virðingu, tillitssemi og tækifæri til mannsæmandi lífs. Það var mikill missir að henni þegar hún lést og í dag er hæstiréttur Bandaríkjanna ein afturhaldssamasta stofnun landsins og skarð fyrir skildi þar sem Ruth Bader Ginsburg sat áður og margir lögspekingar sögðu að draumurinn um að konur í Bandaríkjunum nytu sömu réttinda og karlmenn í reynd í dómskerfinu hefði dáið með henni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.