Ítalskir bæir eru einstakir. Þeir bera það með sér að þarna hefur mannlíf þrifist frá örófi alda og sköpunargáfa, framkvæmdagleði og útsjónarsemi mannkynsins hefur komið að verki í byggingum, skipulagi og skreytingum. Bardolino við Gardavatnið hefur allt þetta og meira til. Hann stendur við austurströnd vatnsins og í baksýn rísa hinar tignarlegu Morainic-hæðir. Gengið er inn í bæinn um tvö hlið, annað norðanmegin en hitt að sunnan.
Í Bardolino má sjá rústir virkisveggjar frá tólftu öld en það var Della Scala-ættin sem byggði um sig virki til að verja ríkidæmi sitt. Ættin réð Verónaborg um langa hríð og við Garda var sumardvalarstaður þeirra. Þegar inn í bæinn er komið vekur athygli hvernig hann virðist byggður eftir síldarbeinamynstri svipuðu því sem við notum gjarnan til að skapa falleg viðargólf á heimilum. Flest fiskimannaþorp við vatnið byggðust upp á þennan hátt til þess að auðveldara væri að draga bátana á land og verja þá þegar á þurfti að halda.

Það er hægt að una sér lengi við að skoða freskurnar í San Severo
Í Bardolino er að finna fallegar kirkjur þar á meðal San Zeno frá um áttundu öld og San Severo frá þeirri tólftu. San Severo þykir meðal meistaraverka rómansk arkitektúrs og innandyra er að finna undurfagrar freskur sem heilla ferðamenn. Veggirnir og loftið eru bókstaflega þakin myndum af atvikum úr lífi Krists og sögum úr Biblíunni. Þarna er hægt að dvelja langdvölum og una sér við að lesa úr þessum fornum myndasögum. San Severo stendur rétt við norðurhliðið.
Vín, olía og matur
Allt svæðið hér er þekkt fyrir vín- og ólífuolíuframleiðslu. Rauðvínið frá Bardolino er ljósrauðara en flest ítölsk vín og léttara. Margir tala um að það minni á rósavín. Það er mjög eftirsótt meðal vínáhugamanna vegna þess hve léttan og sérstakan keim það hefur.
Í gamla bænum er að finna ótal notalega bari, frábæra veitingastaði og litlar handverksbúðir þar sem hægt er að smakka á og kaupa helstu framleiðsluvörur svæðisins. Það er líka dásamlegt að reika um þröngar götur og ganga meðfram vatninu og drekka í sig andrúmsloft þessa forna og fallega bæjar. Þetta er rólegur bær nema þegar markaðurinn er einu sinni í viku þá fyllast göturnar og margbrotið mannlíf verður alls ráðandi. Fimmtudagar eru markaðsdagar í Bardolino. Þangað streyma þá bændur og handverksfólk og bjóða vörur sínar til sölu úr litríkum sölubásum. Það er stórskemmtilegt að ganga á milli, smakka, skoða, snerta og spjalla við sölufólkið. Nefna má einnig að Bardolino er örstutt frá skemmtigörðunum Gardaland og Caneva vatnsleikjagarðinum en þar geta flestir skemmt sér konunglega.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







