„Við gerðum uppreisn gegn hvers konar órétti hvar sem við fundum hann“

Það gerir okkur öllum gott að hverfa um stund aftur í tímann, rifja upp tíðaranda, aðstæður og drauma þeirra sem gengu á undan okkur. Í dagskránni, Bríet, blómin og Hannes draga fjórar konur upp lifandi mynd af Bríet Bjarnhéðinsdóttur, vináttu hennar og Hannesar Hafstein og hvernig hugsjónir þessara tveggja einstaklinga ruddu brautina og breyttu stöðnuðu samfélagi til hins betra.

Leikhúslistakonur 50+ hafa veg og vanda að þessu verki í Hannesarholti en það er auðvitað mjög viðeigandi vettvangur fyrir nákvæmlega þetta umfjöllunarefni. Þrjár leikkonur, Edda Þórarinsdóttir, Þórey Sigþórsdóttir og Helga E. Jónsdóttir stíga fram og flytja sögu Bríetar, Hannesar og hvernig ævi þeirra tvinnast saman við undirleik Laufeyjar Sigurðardóttur fiðluleikara. Þeim tekst frábærlega að gæða efnið lífi og bregða upp svo lifandi myndum af persónunum að áheyrendum finnst þeir um stund flytjast norður í land eða standa meðal hneykslaðra smáborgara í Reykjavík um aldamótin 1900. Ásdís Skúladóttir er leikstjóri og höfundur textans, ásamt hópnum, sem er bæði sérlega vel skrifaður og fluttur og höfundar fundvísir á áhrifamikla og mótandi atburði í ævi bæði Bríetar og Hannesar. Bæði fá að reyna sorgir og mikinn missi en hjá báðum brann hugsjónaeldurinn skært.

Dagskráin stendur yfir í um það bil klukkustund og að henni lokinni er manni ofarlega í huga hversu stutt er í raun síðan konur á Íslandi máttu ekki eiga sér drauma um menntun og þroska á einstaklingsgrundvelli, hversu stutt er síðan að barnadauði var landlægur og algengt var að fólk félli frá í blóma lífsins. Það þurfti þá, eins og nú, sterk bein til að fylgja eftir hugsjónum sínum og segja skoðanir sínar í almannarými. Í dag er okkur hollt að minnast hvað þurfti til að koma okkur á þann stað sem stöndum á nú og vita að mannréttindabarátta kostar ávallt þá sem þar skipa sér fremst í flokk umtalsverðar fórnir. Þess vegna er klukkustund í Hljóðbergi í Hannesarholti með Bríeti og Hannesi vel varið og sagan af blómunum eftirminnileg fyrir margra hluta sakir.

Auglýsing

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.