Það hrjóta næstum allir við og við og fólk þarf svo sem ekki að hafa miklar áhyggjur af því, segir á vefnum helpguide.org. Eftir því sem við eldumst aukast hroturnar. Fólk sem er í yfirvigt eða í slæmu form hrýtur frekar en þeir sem hreyfa sig eða eru í kjörþyngd. Stíflaður öndunarvegur, drykkja, reykingar og notkun á róandi lyfjum geta líka leitt til þess að fólk hrjóti. Sólveig Magnúsdóttir læknir skrifaði um hrotur á vefinn Doktor.is og Lifðu núna fékk leyfi til að nota greinina. Sólveig segir
Hrotur eru algengur og hvimleiður kvilli sem getur haft áhrif á svefn ekki einungis þess sem hrýtur, heldur einnig á svefn maka eða annarra sem sofa í heyrnarfæri. Talið er að um helmingur karla og fjórðungur kvenna eldri en 50 ára hrjóti. Þegar við sofnum slaknar á vefjum í munni og koki og þegar loft streymir fram hjá þessum slöku vefjum veldur það titringi. Þegar slaknar á vefjunum geta þeir þrengt verulega að öndunarveginum. því þrengri sem loftvegurinn verður því meiri kraftur verður á loftinu, vefirnir titra meira og hroturnar verða hærri. Ýmsir þættir geta aukið þrengsli í öndunarfærum og er offita ein af algengari orsökum fyrir hrotum en einnig geta stórir háls- eða nefkirtlar, stór úfur, ofnæmi og langvarandi nefstíflur, gómur sem nær langt aftur í kok og skekkja á miðsnesi ásamt fleiru valdið auknum þrengslum í öndunarfærum. Með aldrinum slaknar á þessum vefjunum og er það ein af ástæðunum fyrir því að hrotur aukast með aldrinum.
Kæfisvefn er einnig algeng orsök fyrir hrotum, við kæfisvefn lokast öndunarvegurinn alveg í nokkrar sekúndur, þá fær líkaminn ekkert súrefni en koldíoxíð hleðst upp sem aftur vekur sjúklinginn og hann tekur andköf og hrýtur mikið. Sjúklingar verða ekki endilega varir við að vakna á nóttunni heldur er helsta einkenni kæfisvefns þreyta og dagsyfja Í þeim tilfellum sem grunur leikur á kæfisvefni er það fengið staðfest með sérhæfðri rannsókn, s.k. svefnrannsókn. Sólveig segir að þetta geti hjálpað ef fólk hrjóti.
- Ef þú er yfir kjörþyngd er mikilvægt að þú reynir að léttast.
- Reyndu að sofa á hliðinni, þegar við liggjum á bakinu rennur tungan aftur í kokið og lokaröndunarveginum.
- Hækkaðu undir höfðinu.
- Ef þú ert stífluð í nefinu reyndu nefspray í nokkra daga, ef það hjálpar hafðu þá samband við heimilislækninn þinn og fáðu viðeigandi meðferð.
- Forðastu róandi lyf, svefnlyf og áfengi, þau auka á slökun og auka á vandann.