Hörkuspennandi og áhrifamikill reyfari

Sofðu vært eftir hjónin Cillu og Rolf Börjlind er fjórða bókin um Tom Stilton og Olivia Rönning. Þetta er einstaklega vel skrifaður reyfari í senn ofboðslega spennandi og átakanlegur. Þau Cilla og Rolf kynntust þegar þau skrifuðu saman handrit að sænskum gamanþáttum og smullu svo vel saman að þau hafa síðan bæði skrifað ótal handrit að kvikmyndum og sjónvarpsþáttum en einnig frábærar glæpasögur.

Þegar þau byrjuðu að skrifa sakamálasögur vissu þau að þau vildu ekki setja saman hefðbundið lögguteymi þar sem snjallir leiðtogar leystu mál með hjálp sinna góðu aðstoðarmanna. Tom er fyrrum lögreglumaður en missti allt og var heimilislaus um tíma en Olivia er hins vegar ung lögreglukona, full metnaðar og trúar á réttlæti kerfisins. Hennar yfirmaður er Mette Olsäter, lífsreynd kona sem veit að mennirnir eru alls konar og sömuleiðis kerfin sem þeir skapa.

Í Sofðu vært hittum við Oliviu Rönning fyrir á aðaljárnbrautarstöðinni í Stokkhólmi þar sem hún er í sjálfboðavinnu við að útdeila mat. Þar ríkir mikið öngþveiti og flóttamannakrísan í Evrópu er augljós. Í hópnum eru mörg fylgdarlaus börn, þar á meðal unglingsstúlka sem fær hjálp frá heimilislausri konu, Muriel. Sú hefur verið á götunni lengi og glímir við fíkn. Þær tvær finna sér skjól í litlu húsi í Lissmar-skógi en komast að því að hvergi er raunverulegt öryggi að finna fyrir fólk í þeirra stöðu. Unglingspiltur finnst svo látinn og svo virðist að rekja megi slóð hans til Rúmeníu. Mette hefur ákveðnar efasemdir um Tom, siðferði hans og hve viljugur hann er að leika eftir leikreglum kerfisins. Hún á hins vegar bágt með að neita þegar hann býður fram hjálp sína og því sendir hún, Oliviu og Tom til Búkarest til að komast að því hver hann var. Þar komast þau skötuhjúin í hann krappan og þetta mál er bæði flóknara og hættulegra en nokkurn grunaði.

Þau Cilla og Rolf eru óvægin í bókum sínum og reyna ekki að mýkja harðneskju undirheimanna eða draga úr þeirri mannfyrirlitningu sem flóttafólki er sýnd á vesturlöndum. Það gerir þessa bók óvenjulega áhrifmikla og lesandinn verður stundum hreinlega að leggja hana frá sér um stund en persónurnar eru óvenjulega áhugaverðar og það er sannarlega þess virði að lesa þessa bók.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.