Ef afi og amma taka að sér að passa barnabörnin í vetrarfríi grunnskólanna í Reykjavík í ár geta þau nýtt tímann til að gera margt skemmtilegt og uppbyggilegt í bókasöfnum borgarinnar. Eftirfarandi er dagskrá safnanna meðan á fríinu stendur:
Það þarf engum að láta sér leiðast í vetrarfríi grunnskóla í Reykjavík því dagana 19. – 22. febrúar býður Borgarbókasafnið upp á bráðskemmtilega dagskrá fyrir börn og fjölskyldur.
Hvorki meira né minna en tólf viðburðir verða á boðstólum á safninu alla dagana úti um allan bæ. Má þar nefna myndasögusmiðju, kviss, föndur, Minecraft-smiðju og bingó, þar sem veglegir vinningar verða í boði. Að ógleymdum ratleik sem verður í boði á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal 19. febrúar og stendur yfir allan daginn.
Í ár verður áhersla lögð á tónlist. Þannig verður snilldar lagasmiðja í Grófinni þar sem börnum gefst kostur að búa til eigin lög og svo verða tónleikar haldnir í bæði Gerðubergi og Spönginni þar sem leikin verða dægurlög fyrir alla fjölskylduna.
Eru tónleikarnir hluti af hinni sívinsælu tónleikaröð Dægurflugur í hádeginu undir listrænni stjórn Leifs Gunnarssonar kontrabassaleikara, sem fær að þessu sinni tónlistarkonurnar Unni Birnu og Dagnýju Höllu til að flytja með sér ýmis ástsæl lög.
Allt þetta og ýmislegt fleira verður í boði á Borgarbókasafninu í vetrarfríi grunnskóla í Reykjavík og um næstu helgi, svo börn – og foreldrar líka – ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ókeypis er á alla viðburði.
Nánar um dagskrána á heimasíðu Borgarbókasafnsins:







