Kíkjum í jólapakkann

Björn HalldórssonGuðrún Eva MínervudóttirRithöfundarnir Björn Halldórsson, Guðrún Eva Mínervudóttir og þýðandinn Ingunn Snædal kynna nýútkomnar bækur sínar í spjalli sem Sunna Dís Másdóttir rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar leiðir. Dagskráin fer fram á Borgarbókasafninu Gerðubergi, miðvikudaginn 4. nóvember kl. 18:30 – 20:00.

Björn Halldórson fjallar um skáldsögu sína Ókunnugt fólk sem hlotið hefur sérlega góðar viðtökur, jafnt gagnrýnenda sem og lesenda. Sagan gerist að hluta í Breiðholti eins og Ingunn Snædal myndin sem prýðir forsíðu bókarinnar endurspeglar. Guðrún Eva Mínervudóttir segir frá bók sinni, Ljósföður. Um er að ræða sögulega skáldsögu sem Sunna Dís Másdóttirbyggir á sögu Jónasar Jónssonar, forföður Guðrúnar Evu, sem tók á móti börnum og stundaði lækningar. Ingunn ræðir um nýútgefna þýðingu sína á hinni gífurlega vinsælu og umtöluðu skáldsögu, Yesteryear, eftir bandaríska rithöfundinn Caro Claire Burke.

Öll hjartanlega velkomin á skemmtilegt og upplífgandi samtal um nýjustu bækurnar sem streyma þessa dagana inn á bókasöfnin.

Aðgangur er ókeypis.