Tónleikaveisla fram undan á Borgarbókasafninu. Tríóið Unnur Birna og Dagný Halla Björnsdætur og Leifur Gunnarsson skemmta gestum og gangandi með sögum, söng og lifandi tónlist.
Tónlistarkonurnar og systurnar Unnur Birna og Dagný Halla Björnsdætur og kontrabassaleikarinn Leifur Gunnarsson bjóða upp á tvenna tónleika þar sem söngur, fiðla, gítar og kontrabassi mætast í skemmtilegu samspili.
Tríóið ætlar að flytja lög að norðan og sunnan, rifja upp sögur og leyfa tónlistinni að leiða áhorfendur um landið þvert og endilangt. Þetta verður notaleg stund á safninu þar sem við förum bókstaflega út og suður, norður og niður!
Tónleikarnir eru hluti af hinni geysivinsælu viðburðaröð Dægurflugur í hádeginu og fara fram á Borgarbókasafninu um næstu helgi.
Fyrri tónleikar:
Borgarbókasafnið Gerðubergi
föstudagur 20. febrúar
kl. 12:15-13:00

Seinni tónleikar:
Borgarbókasafnið Spönginni
laugardagur 21. febrúar
kl. 13:15-14:00
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir, ekki síst fjölskyldur með börn í vetrarfríi!
Nánar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:







