Í nýjum þáttum, Love Story, um þau Carolyn Bessette og John F. Kennedy jr. bregður Ethel Kennedy fyrir. Hún var kona Roberts Kennedy en hún og Jackie leiddu fjölskylduna eftir lát manna sinna og stjórnuðu andanum þegar hún kom saman. Í þáttunum situr Ethel við borðsendann og spyr viðstadda fjölskyldumeðlimi spjörunum úr um helstu pólitísku álitamál þessa tíma og vei þeim sem ekki er undirbúinn undir að svara.

Ethel Kennedy með yngstu dóttur sinni, Rory, sem er heimildakvikmyndgerðarmaður.
Ethel var bráðgreind og vel menntuð kona sem barðist allt sitt líf fyrir mannréttindum. Hún lést þann 10. október 2024 níutíu og sex ára gömul. Ólíkt Jackie giftist hún ekki aftur eftir að Robert var myrtur árið 1968 og átti sér enga elskhuga. Aðspurð um hvers vegna hún hefði ekki áhuga á ástarsamböndum því ekki skorti hana vonbiðla svaraði hún: „Það væri framhjáhald.“ Hún og Robert áttu ellefu börn og hún einbeitti sér að því að ala þau upp og stofnaði og rak the RFK Center for Justice and Human Rights, RFK stendur auðvitað fyrir Robert Fitzgerald Kennedy.
Auk þess að hafa ástríðufullan áhuga á stjórnmálum og mannréttindamálum barðist Ethel fyrir betri umgengni manna um náttúruna. Hún studdi baráttu frumbyggja Bandaríkjanna fyrir að fá að halda sínu landi og lífsháttum og var sömuleiðis vakin og sofin í að tryggja réttindi og vellíðan farandverkamanna í Bandaríkjunum. Í the RFK Center for Justice and Human Rights er veitt ókeypis lögfræðiaðstoð fyrir þá sem þurfa að leita réttar síns í bandaríska dómskerfinu en eiga ekki peninga til að reka mál sitt. Robert Kennedy var einmitt lögfræðingur að mennt svo það á vel við en Ethel styður einnig fólk til mennta í gegnum samtökin.

Ethel var lagleg ung kona.
Með hrygg úr stáli en hjarta úr gulli
Eftir að Robert dó hélt hún áfram heimili í Hickory Hill í Virginíu þar sem hún og Robert höfðu búið saman en dvaldi einnig og gengdi hlutverki húsmóðir í Hyannis Port, sumardvalarstað fjölskyldunnar. Vinir hennar lýstu henni þannig að hún hefði hrygg úr stáli en hjarta úr gulli. Hún þurfti oft í gegnum lífið á því að halda að standa keik þótt á móti blési og hefur þá stálhryggur án efa komið sér vel. Hún missti mann sinn árið 1968, fjórða barn þeirra, son, Kathleen, dóttir hennar, slasaðist illa þegar hún datt af hestbaki fjórtán ára en lifði af, Joseph Patrick, næstelsta barnið, varð valdur að bílslysi árið 1973 en slapp óskaddaður en vinkona hans sem var með honum í bílnum lamaðist. David Anthony, sá fjórði í röðinni, barðist við fíkn frá unga aldri og dó úr ofskammti eiturlyfja árið 1984 það gerði einnig Saoirse, einkadóttir Mary Courney, fimmta barns Ethelar og Roberts. Sjötta barnið, Micheal, var sakaður um að hafa átt í ástarsambandi við fjórtán ára barnfóstru barna sinna og olli það gríðarlegu hneyksli árið 1997. Hann dó í slysi sama ár þegar hann skíðaði á tré. Mave, dóttir Kathleen, elsta barns Ethel og Roberts, drukknaði ásamt syni sínum þegar kanó sem þau voru í hvoldi árið 2020. Robert yngri hefur einnig barist við fíkn og verið mjög umdeildur fyrir skoðanir sínar. Hann telur m.a. að ekki eigi að bólusetja fólk.
En þótt bandarísku blöðin hafi gjarnan talað um bölvun Kennedy-fjölskyldunnar og vísað til þess fjölda slysa og sorgaratburða sem hafa elt hana var Ethel alls ekki óvön slíku þegar hún giftist Robert. Hennar eigin fjölskylda bar ættarnafnið Skakel og foreldrar hennar dóu í flugslysi þegar Ethel var rétt tvítug, bróðir hennar George fórst í öðru flugslysi tíu árum síðar.
Ethel var heittrúaður kaþólikki en Kennedy-fjölskyldan tilheyrði einnig þeim trúarbrögðum. Hún gekk í virtan kaþólskan skóla, the Convent of the Sacred Heart í New York og lauk háskólaprófi frá Manhattanville College. Þar kynntist hún einni Kennedy-systurinni og var boðið í heimsókn til Hyannis Port. Þar varð hún fyrst skotin í John F. Kennedy en þegar hann sýndi henni engan áhuga sneri hún sér að bróður hans, Bobby. Þau áttu það sameiginlegt að vera heittrúuð og giftu sig í St. Mary’s Roman Catholic Church í Greenwich árið 1950. Ungu hjónin keyptu sér hús og stofnuðu heimili í Hickory Hill rétt fyrir utan Washington DC.

Robert og Ethel skömmu áður en hann var myrtur.
Var stöðugt borin saman við Jackie
Eftir að John F. Kennedy var kosinn forseti og Bobby skipaður dómsmálaráðherra mátti Ethel þola að vera stöðugt borin saman við Jackie. Meðan Jackie þótt ímynd glæsileika og fágunar var Ethel góður íþróttamaður með mikið keppnisskap. Hún lagði ekki eins mikið upp úr klæðaburði og glæsilegum veislum eins og Jackie en var með gott eyra fyrir pólitík og hjálpaði manni sínum oft að finna leiðir til að koma málefnum sínum á framfæri. Ethel stóð við hlið manns síns þegar hann var skotinn af Sirhan Sirhan og hún kom í veg fyrir að morðingi hans hlyti náðun þegar hann sótti um hana. Í bréfi sem hún skrifaði nefnd um reynslulausn sem skipuð hafði verið til að fjalla um mál hans lýsti hún því hversu miklum sársauka og erfiðleikum hann hefði valdið fjölskyldu hennar.
En þótt Ethel hafi í bréfi sínu lýst því hversu djúpstæð áhrif dauði föður þeirra hafði á börn hennar og hana sjálfa var hún ekki þunglynd. Hún fylgdist ævinlega vel með, var glaðlynd, stjórnsöm og ákveðin. Hún var hundakona og átti marga hunda af tegundinni Irish Setter um ævina. Níu barna hennar eru enn á lífi, þau hafa öll valið sér starfsferil í stjórnmálum, lögfræði og mannréttindabaráttu. Ethel átti þrjátíu og fjögur barnabörn og tuttugu og fjögur barnabarnabörn þegar hún lést svo þessi leggur fjölskyldunnar er tryggður.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







