Að rækta hugann og sína einstöku sýn á lífið er góð leið til að skapa sér afþreyingu og rækta heilsuna. Bandaríska listakonan Georgia O’Keefe sagði einhvern tíma að þegar hún hefði gert sér grein fyrir að í huga hennar hrærðust ímyndir og form sem líktust engu sem henni hefði verið kennt hafi hún ákveðið að gleyma öllu sem hún hefði lært og mála á strigann þessar hugmyndir sem voru henni svo tamar en öðrum algjörlega framandi. Georgia tjáði með þessum orðum kjarnann í allri sköpun, nefnilega það að hver einstaklingur tjáir það sem er einstakt í hans eðli. Allir menn hafa mikla þörf fyrir að skapa og þeir sem eru heppnir finna leið til að fá útrás fyrir sköpunarþörfina. Hvort sem menn velja að mála, smíða, elda, skrifa eða dansa gefur sköpunarferlið þeim útrás og innri gleði sem ekkert annað getur veitt.
Njóttu velgengni
„Hvað er velgengni? Hver nýtur meiri velgengni í lífinu sá ríki eða sá fátæki?“ Spekingar og nýaldarsinnar keppast við að fullvissa fólk um að oft sé það í koti karls sem kóngs sé ekki í ranni en flestum hættir þó við að skilgreina velgengni eftir þeim auðæfum sem sjást fremur en hinum. Hver og einn verður þó að ákveða sjálfur hvað hann telur velgengni og eftirsóknarverð lífsgæði. Hvort hefur til að mynda náð meiri árangri í lífinu, forstjóri sem hefur byggt upp öflugt fyrirtæki eða móðir sem hefur komið fimm börnum til manns? Fyrirtæki lenda iðulega í erfiðleikum þegar sterkra stjórnenda nýtur ekki lengur við en gott uppeldi skilar sér áfram til næstu kynslóða. Oprah Winfrey kemst að þeirri niðurstöðu að hver sá sem gefur sál sína í verk sín nái árangri og njóti velgengni þótt hún sé ekki mælanleg í krónum og aurum. Njótið velgengninnar.
lmkjarnaolíur
Lyktarskynið er oft vanmetið en það hefur mun meiri áhrif á andlega vellíðan en menn gera sér grein fyrir. Ilmkjarnaolíur eru góð leið til að virkja það. Sítrónugras, mynta, lavender og sítrusávextir hafa endurnærandi og róandi áhrif. Hægt er að kaupa sérstaka lampa fyrir olíurnar eða nota baðolíur með þessum ilmi, þá bætast við slakandi áhrif heita vatnsins.
Dugnaður er ofmetinn
Að vera duglegur er líklega eitt besta hrós sem nokkur Íslendingur getur fengið. Trúin á stritið er rík í landanum og vinnuveitendur vilja flestir að starfsmenn þeirra séu að hamast eins og vinnusamar býflugur allan vinnudaginn. Mannsheilinn er hins vegar ekki gerður fyrir slíkar vinnuaðferðir. Einbeitingin meðalmannsins byrjar að dofna eftir fjörutíu mínútur og eftir það eykst hætta á mistökum. Þess vegna er mælt með að menn standi reglulega upp frá tölvunni eða taki sér hvíld frá því sem þeir eru að gera til að skerpa athyglina. Kaffibolli og spjall með vinnufélaga, gönguferð upp og niður stigana, vatnssopi, nokkrar teygjur eða ofurlítil gæðastund með sjálfum þér endurnærir og starfsmenn koma vakandi, glaðir og með athyglina í lagi aftur að vinnustöð sinni og afköstin aukast til muna. En það er ekki nóg að gæta þess að fá hvíld í vinnunni. Það sem þú gerir utan vinnutíma skiptir einnig miklu máli.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







