Nöturleg framtíðarsýn

Harðindi eftir Vilhjálm Pétursson er nöturleg framtíðarsaga. Íslenskt samfélag er hrunið, ekkert rennandi vatn lengur, ekkert rafmagn, ekkert net og lítið um æti. Þeir sem kunna að afla matar eru flestir dauðir og eftir situr örvæntingarfullt fólk og berst um að það litla sem enn kann að leynast ætilegt og nýtilegt í rústum þess sem einu sinni var ríkt neyslusamfélag.

Steinn hefur dregið fram lífið einn uppi í Breiðholti en þegar vorar flýr hann borgina á grindhoraðri meri sem hann hefur komist yfir og heldur upp í Borgarfjörð. Eitt sinn var það draumur hans að setjast þar að þegar að eftirlaunaárunum kæmi og njóta sveitasælunnar. Nú er þar einskis að njóta og hættulegt fólk á hverju strái.

Vilhjálmur sigraði samkeppni Forlagsins Nýjar raddir með þessari bók. Hún er vel skrifuð og eitthvað gerir það að verkum að maður verður að lesa hana til enda þótt sú heimsýn sem dregin er upp sé andstyggileg. Græðgi, fyrirhyggjuleysi og stjórnlaus neysla nútímasamfélags er Hrunadans og ómögulegt að vita hvert sá lífsstíll leiðir okkur. Þetta er stutt en áhrifamikil saga sem minnir okkur á að kannski reddast þetta bara alls ekki og það sem þá kann að taka við ekki eftirsóknarvert.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.