Sæmi Rokk fyrrverandi lögreglumaður er látinn, níræður að aldri. Sæmi og bróðir hans, Magnús fæddust í Reykjavík 31. júlí árið 1936. Sæmi var skírður Sæmundur og var Pálsson en hann fékk leyfi mannanafnanefndar til að breyta nafni sínu í Sæmi Rokk árið 2018. Ástæða nafnaskiptanna var að þjóðin þekkti manninn undir þessu heiti og honum fannst því best að fá að heita því í þjóðskrá líka. Svipuð rök lágu beiðni Jóns Gnarr um hið sama.
Sæmi var ákaflega fjölhæfur og skemmtilegur maður. Hann var frábær dansari, leikarinn og þótti í störfum sínum sem lögreglumaður sýna óvenjulega næmni og lagni í mannlegum samskiptum. Hann varð þjóðkunnur fyrir hversu lipur og fær dansari hann var í árdaga rokktónlistarinnar hér á landi. Hann dansaði rokk betur en nokkur annar en dansfélagi hans var Jónína Karlsdóttir, alltaf kölluð Didda. Þau komu fram á skemmtunum og í sýningum víða og margir sóttu í smiðju þeirra þegar þeir fóru að stíga rokkdans.
Sæmi kom síðar í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu. Þar var hann kallaður Óliver Tvist og sagðist tvista til þess að gleyma. Mörgum fannst hann ógleymanlegur í því hlutverki. Og enn eitt hlutverk tókst hann á hendur þegar að hann var gerður að lífverði Bobby Fischer þegar heimsmeistaraeinvígið í skák var haldið hér árið 1972. Milli Sæma og Bobbys myndaðist náin vinátta og átti Sæmi stóran þátt í að heimsmeistarinn fyrrverandi flutti hingað til lands og lést hér.
Eiginkona Sæma var Ásgerður Ásgeirsdóttir en hún lést árið 2022. Saman áttu þau fjögur börn, fjölmörg barnabörn og barnabarnabörn. Sæmi Rokk var í viðtali við Lifðu núna fyrir fjórum árum.






