Fyrir nokkru var orðið ljósmóðir kosið fegursta orð íslenskrar tungu og sé svo ætti ljósfaðir án efa að sitja í öðru sæti. Það er einmitt titillinn á nýrri bók Guðrúnar Evu Mínervudóttur en tvær persónur bókarinnar eru byggðar á forföður hennar og þriðju eiginkonu hans. Jónas Jónsson var sjálflærður læknir, einkar fróður og sérstakur maður sem veitti mörgum líkn. Ekki amalegt að geta litið til baka til slíkra áa.
Nú á dögum er áhugi á ættfræði ekkert ýkja mikill meðal yngra fólks og ekki allir sem búa að því að þekkja til þeirra sem á undan þeim gengu. Hvernig kom það til að þú fórst að skrifa sögu ljósföðurins Jónasar Jónssonar?
„Sumarið 2022 sat ég á kaffihúsi á Akureyri með vinkonu minni Arnbjörgu (Konráðsdóttur Vilhjálmssonar Jónassonar) þegar hún fór að segja mér frá langafa sínum. Það hljómaði allt saman mjög kunnuglega í mín eyru svo við fórum inn á Íslendingabók og komumst að því að við áttum þennan sameiginlega forföður. Það sumarið var ég að ganga frá til prentunar skáldsögunni Útsýni og fitja upp á skáldsögunni Í skugga trjánna,“ segir Guðrún Eva. „Ég gladdist yfir því að þessi góða vinkona væri þar að auki frænka mín og við undan svona stórmerkum manni.
Eftir þetta varð Jónas í Hróarsdal mér nokkuð hugleikinn og ég hélt að hann yrði verndari og dulvitund nýju skáldsögunnar, kannski með svipuðum hætti og Raspútín var í Skeggi Raspútíns (2016). En svo reyndist annar efniviður yfrið nægur og smám saman rann upp fyrir mér að Jónas í Hróarsdal ætti auðvitað að fá sína eigin skáldsögu. Seinna benti Arnbjörg mér á að ræða við frænda okkar Kára Jónasson (Jósteinssonar), sem líkt og ég er afkomandi Jósteins, næst-elsta sonar Jónasar. Kári hafði þá ritað langa og ítarlega grein um Jónas í Skagfirðingabók – Rit Sögfélags Skagfirðinga 2023 – sem ég hvet allt áhugasamt fólk til að lesa. Hann tók erindi mínu vel og bar í mig heimildir, vísaði á heimildarmenn og fylgdi mér á Þjóðskjalasafnið til að skoða galdrabók Jónasar. Svo fór ég að ræða þetta við ágætan vin minn, Hall, sem ég kynntist þegar við bjuggum bæði í Hveragerði þar sem hann starfaði sem kennari og hænsnabóndi. Það tók mig smástund að átta mig á viðbrögðum hans, en hann svaraði eitthvað á þá leið að faðir hans ásamt fleirum ættu nú auðvitað húsið í Hróarsdal. Það gat nú skeð og dæmigert fyrir framvindu lífsins að Hallur (Hróarsson Pálssonar Jónassonar) reyndist þá vera frændi minn líka og góður liðsmaður í að kynna mig fyrir afkomendum yngstu barna ljósföðurins – en þau koma einmitt mikið við sögu í bókinni.“

Guðrún Eva les úr bók sinni
Hver er mín gjöf til samfélagsins?
Jónas átti mjög sérstæða ævi, svo ekki sé meira sagt og nokkuð augljóst að hann hefur haft til að bera mikinn mannkærleika og umburðarlyndi. Voru það þeir eðliskostir sem heilluðu þig?
„Já, mér hefur alltaf fundist hann vera sönn hetja, heilbrigð karlmennska uppmáluð. Orðspor hans og eftirmælin um hann hafa alltaf snert djúpt við mér. En svo kom í ljós að einmitt þeir mannkostir hans sem heilluðu mig urðu eiginlega til þess að gera hann óhæfan sem aðalpersónu í skáldsögu. Hann var ekki nógu breyskur. Það var varla neitt um hann að finna annað en lofgjörð og hetjusögur. Mér varð því fljótt ljóst að hann yrði að vera stórbrotin aukapersóna í sinni eigin skáldsögu, svo sagan yrði ekki eintómur lofsöngur um líf hans og starf. Um svipað leyti fékk ég áhuga á þriðju eiginkonu hans, Lilju Jónsdóttur, og því hlutskipti hennar að verða kornung fósturmóðir fjölmargra ný-móðurlausra barna, ganga með fjórtán Jónasarbörn til viðbótar og sjá um börn og bú á meðan Jónas fór í læknisferðir sínar auk þess að vera lærlingur hans í læknisdómum og yfirsetufræðum. Smám saman mótaðist hún sem aðalpersóna sögunnar og núna finnst mér ég vera alveg jafn tengd henni og Jónasi, þótt ég sé ekki beinn afkomandi hennar. Því má bæta við að mér finnst afstaða þeirra hjóna til lífsins og margt í tíðarandanum þarna fyrir hundrað árum eiga mikilvægt erindi við okkar tíma sem einkennist að mörgu leyti af uppgangi fasisma og mikilli einstaklingshyggju. Kannski er stærsta gjöf hvers einstaklings til sjálfs sín einmitt núna að spyrja sig á hverjum degi: Hver er mín gjöf til samfélagsins? Því það er best í heimi, fallegast og skemmtilegast að gefa af sér, sama hversu lítið það er og þarf heldur ekki að vera efnislegt.“
Sögusviðið meira og minna sannleikur
Það eru sannarlega orð að sönnu og margir hafa þá tilfinningu að í samfélagi ofgnóttar sé samheldni, örlæti og mannúð á undanhaldi. En hversu sögulega nákvæm er bókin og hvert sóttir þú helst heimildir um líf Jónasar?
„Ég held að ef grannt er skoðað gæti það komið fólki á óvart hversu margt af því sem kannski virðist ýkt og ævintýralegt er haft beint eftir þeim sem það lifðu. Það má segja að sögusviðið sé meira og minna sannleikanum samkvæmt eftir minni bestu vitund en framvindan sé skálduð – en ekki út í loftið heldur upp úr þeim sögubrotum sem ég kom höndum yfir. Eins og ég hafði orð á áðan var Kári frændi Jónasson mér haukur í horni og lét mér í té margt nýtilegt. Eins var frænka mín Hallfríður María Pálsdóttir svo örlát að lána mér bækur, segja mér sögur og ausa af viskubrunni sínum sem menntaður og starfandi hómópati. Faðir hennar er Páll Jónasson, einn af yngstu börnum ljósföðurins, og kemur talsvert við sögu í bókinni. Hún tímdi meðal annars að lána mér eldgamlar skræður um læknisfræði úr fórum afa síns, svo gamlar og verðmætar að það lá við að ég bæri þær heim á silkipúða til að passa sem best upp á þær. En ein af bókunum sem hún lánaði mér heitir Skyggni og fjallar um Jón Norðmann, elsta son Lilju og Jónasar. Sú bók er að mörgu leyti einkennileg smíð af hálfu höfundarins, en það sem haft er beint eftir Jóni er bæði nákvæmt og merkilegt.
Ég er sérlega þakklát mínum frænda, Jóni Norðmann, fyrir að hafa skrásett hlutina af svona mikilli nákvæmni og skáldlegri tilfinningu fyrir hversdagsleikanum. Svo fann ég meira af skrifum hans á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga á Sauðárkróki. Þar á meðal æviágrip föður hans á lausum blöðum. Það handrit er því miður illa varðveitt, en í því fann ég þó meðal annars lýsingu á dauðastundu ljósföðurins. Auður Jónsdóttir vinkona mín útvegaði mér síðan heilan sagnfræðing til skrafs og ráðagerða, en það er Pétur Hrafn Árnason sem er sjálfur flinkur höfundur sögulegra rita. Hann lánaði mér heilmargar bækur og var alltaf á kantinum, tilbúinn með allt sem mig vantaði. Ari Gísli og félagar í Bókinni á Klapparstíg voru líka mjög liðlegir og frændi minn Þorvaldur Sigurðsson (faðir hans heitir Björgvin í bókinni) er alinn upp í Hróarsdal og hjálpaði mér að glöggva mig á staðháttum. Stuðningur hans og hvatning voru góðir förunautar á þessari vegferð allri. Ingibjörg Elín Jónasdóttir (Hróbjartssonar Jónassonar) hefur í sinni varðveislu læknistösku langafa síns, sem hún var svo væn að sýna mér og sagði mér þar að auki leyndarmál sem varð dýrmætt atriði í framvindu sögunnar. Það vill líka svo til að Kristrún Heiða Hauksdóttir, minn yndis ritstjóri og hugmyndaríki höfundahvíslari, er Skagfirðingur. Hún ók með mig heim til mömmu sinnar á Sauðárkróki sem á mikið safn bóka um Skagafjörð. Þar fann ég alveg ýmislegt sem er í frásögur færandi.“
Vandi að fjalla um raunverulegt fólk
Er að einhverju leyti öðruvísi að skrifa bækur byggðar á lífi raunverulegs fólks en að skrifa hreinan skáldskap?
„Þegar ég fjalla um raunverulegt fólk er ég alltaf á tánum því ég vil ekki gera neinni manneskju rangt til eða varpa skugga á neinn,“ segir Guðrún Eva. „En á sama tíma verður persónan að vera af holdi og blóði, það er að segja hafa í sér ljós og skugga. Það má ekki vera einhver glansmynd. Svo þetta er vandasamt einstigi.
Annar vinkill er sá að hugmyndir kvikna jú upp úr raunveruleikanum og raunverulegt fólk er endalaus uppspretta atvika, setninga og þess mannlega núnings sem á svo vel heima í skáldskap. Það er eins og blóðgjöf inn í ferlið. Þetta á við líka um hreinan skáldskap. Flestar skáldaðar persónur eru eins konar mósaík sem raðað er saman úr raunverulegum fyrirmyndum. Og hugmyndir um framvindu kvikna oftast upp úr einhverju sem fólk hefur upplifað sjálft eða raunveruleg atvik sem það hefur heyrt og lesið um.“
Átt þú þér uppáhaldsbók eða -bækur í hópi bóka þinna?
„Yfirleitt held ég mest upp á þá nýjustu og vil gjarnan ímynda mér að færnin aukist með hverri bók. Að öðru leyti geri ég ekki upp á milli. Með einni smávægilegri undantekningu. Ég held sérlega mikið upp á síðustu söguna í smásagnasafninu Ástin, Texas. Sú saga heitir Hús hinna deyjandi og fjallar um Möggu og Sóta sem eru í miklu uppáhaldi hjá mér sem sögupersónur. Ég vildi óska að þau hefðu komið til mín sem skáldsaga frekar en smásaga. Og hver veit hvað síðar verður.“
Margir vilja meina að upphafssetning bókar sé sú mikilvægasta og víst er að mörg upphöf bóka hafa orðið fleyg og sitja í fólki. Átt þú erfitt með að byrja bók?
„Skáldsögur eru dularfull fyrirbæri og hafa sinn sjálfstæða vilja. Ég myndi aldrei þvinga fram byrjun á sögu. Frekar bíð ég þar til upphafsorðin koma til mín,“ segir hún að lokum en saga hennar, Ljósfaðir, er einstök, marglaga og falleg.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







