Undanfarið hafa nokkrar íslenskar skáldkonur leitað fanga í sögum af formæðrum sínum og gert úr þeim efnivið fádæma falleg listaverk. Það nægir að nefna Urtu Gerðar Kristnýjar, Völsku Nönnu Rögnvaldardóttur og Ilmreyr Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur. Bækur Kristínar Ómarsdóttur undir yfirskriftinni Móðurást eru einnig í þeim flokki og sú nýjasta ekki síðri en þær fyrri. Guðrún Eva Mínervudóttir sker sig hins vegar úr því það er langalangaafi hennar sem er ein af persónum hennar bókar og skoðum betur tvær nýútkomnar bækur þar sem Íslendingar fyrri tíma eru í aðalhlutverkum.
Einstakur mannskilningur
Ljósfaðir eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur er fádæma vel skrifuð bók um þá storma og vinda sem geisa í mannsálinni. Jónas Jónsson og þriðja eiginkona hans Lilja Jónsdóttir búa í Hróarsdal í Skagafirði. Þar taka þau á móti sjúklingum og leitast við að lækna og líkna þrautir þeirra. Jónas er merkur maður, virtur í sveitinni fyrir einstaka hæfileika til að taka á móti börnum í heiminn og þekkingu sína á lækningum. Sumir trúa því meira að segja að hann sé göldróttur þegar kemur að slíku.
Jónas var til og ekki eingöngu þekktur fyrir læknisdóma sína heldur einnig fyrir það að eignast þrjátíu og þrjú börn. Aðeins átta barna hans voru fædd utan hjónabands og með Lilju eignaðist hann þrettán. Þá er hann sjálfur orðinn roskinn en hún þrjátíu og tveimur árum yngri. Saga Guðrúnar Evu fjallar hins vegar samskipti hjónanna við sjúkling sem óljóst er hvort þeim tekst að lækna. Sömuleiðis er ekki fyllilega ljóst hvort sá vill þiggja nokkra lækningu við sínum meinum.
Jónas er lagstur í kör í byrjun tuttugustu aldar þegar sonarsonur hans, Jónas yngri, kemur frá Ameríku til þeirra í Skagafjörðinn. Áður hafa hjónin verið beðin fyrir hann vegna þess að honum virðist um megn að nýta sér sína mörgu góðu kosti og samlagast mannlífinu, finna sitt hlutverk eða tilgang í lífinu. Jónas yngri hefur strax margvísleg áhrif á allt heimilisfólkið. Suma heillar hann, aðrir eru tortryggnir og finnst hann líta stórt á sig. En það er eins og hann ráði ekki við sig, þurfi öllu og öllum að ögra og nái aldrei fyllilega að lesa í aðstæður. Hann sýnir hvatvísi og skaðar aðra en aldrei er alveg ljóst hvort það eru óviljaverk eða gert til að skapa glundroða, láta reyna á mörk. Milli hans og Lilju skapast togstreita en um leið dýpri tengsl og stóra spurningin er hvort þessi einstaka kona nái að lækna sárin í sálu þessu manns eða hjálpa honum að sitja betur í sjálfum sér.
Þessi bók lýsir einstökum mannskilningi og hæfni höfundar í að lýsa fólki er með ólíkindum. Hér er lag ofan á lagi af ósögðum orðum er liggja í loftinu, alls konar flækjum í samskiptum fólks en líka fegurð, væntumþykju, sakleysi og blíðu. Þetta er saga sem lætur engan ósnortinn en krefst þess jafnframt að hún sé ígrunduð og skoðuð ofan í kjölinn. Guðrún Eva er án efa einn okkar bestu höfunda og Ljósfaðir dásamleg perla sem verður skipaður heiðursess í bókasafni heimilisins.
Frelsisþráin brotin á bak aftur
Móðurást – Lausnargjaldið er fjórða bók Kristínar Ómarsdóttur um æsku Oddnýjar langömmu sinnar í Bræðratungu. Hún er að slíta barnsskónum á ofanverðri nítjándu öld og Kristínu tekst að skapa dásamlegan heim þar sem hversdagsverk verða að ævintýri og tengslum milli fólks lýst af djúpri og fallegri næmni. Kristín hikar aldrei við að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og hún nær ávallt að flétta saman orðum á ófyrirséðan og frumlegan hátt og draga þannig upp ógleymanlegar myndir.
Auðbjörg bíður þess enn að verða fullorðin. Hún elskar orð og talar við kýrnar í fjósinu, skilur færeysku og hlustar vel eftir því sem hin tigna Alexandra Dagmar muldrar meðan hún er mjólkuð. Setselja heldur áfram að fara eigin leiðir og kemst upp með margt vegna dugnaðar síns og vinnuhörku. Það er löngu þekkt í sveitinni að börnin í Bræðratungu þ.e. Ívars og Oddnýjarbörn eru agalaus og brjálsemin lúri í blóðinu en orðrómur fer eins og vindur um allt þegar heyskapur stendur sem hæst og sviptir sumt fólk sig klæðum til að geta liðið betur við vinnuna á sólabrækjunni. Kannski er það upphafið að eftirleiknum.
Sumarið líður með sínum önnum en undir lok þess þurfa þau Setselja og Ívar að gjalda dýru verði það að vera öðruvísi en ætlast er til. Þótt ljóðrænn texti Kristínar sé leikandi léttur, fullur af ævintýrum, fegurð mannlífs og náttúru er engu að síður lýst brimmd og ósveigjanleika staðnaðs og miskunnarlauss samfélags. Konur fá ekki að munda orf og ljá þær eiga að raka og rifja og karlmenn af alþýðustétt hreykja sér um of klæðist þeir taubuxum og fínum skóm. Að ekki sé talað um annars konar óhæfu. Kristín er listagóður höfundur og það býr svo margt í textanum að lesandinn þarf góðan tíma til að melta og ígrunda. Hér er ekki sögð bara ein saga heldur margar.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.






