Nú er ekki lengur boðið upp á hressingu í flugvélum eins og áður var og matur í flugvélum dýr. Hið sama gildir raunar um veitingahús í flugstöðvarbyggingnum, þar er álagning ríkuleg og maturinn iðulega ólystugur og illa eldaður. Hvað er þá til ráða? Margir eru farnir að taka til nesti heima og hafa með sér í flug.Þá er tryggt að þú færð góðan og næringarríkan mat eldaðan eins og þú vilt hafa hann.
En vert er að hafa í huga að breytingar verða á skynfærum okkar þegar við erum komin upp í háloftin um borð í flugvél. Meðal þess sem breytist er hvernig við upplifum mat. Margt bragðast fullkomlega á jörðu niðri en virkar bragðlaust og vont þegar komið er upp í 50.000 fet. Þetta er meðal annars ástæða þess að mörgum finnst flugvélamatur vondur.
Áhrif háloftanna á bragðskynið
Hátt uppi í himinhvolfinu gerist eitthvað sem gerir það að verkum að bragðlaukarnir eru lengur að nema sætt og salt bragð. Við erum allt að því 30% lengur að nema þær bragðtegundir og upplifum þær þess vegna umtalsvert daufari. Rammt og súrt bragð helst eins og þess vegna verður það mun meira áberandi en þyrfti að vera í mörgum réttum.
Að vera í flugvél hefur einnig áhrif á lyktarskynið. Þar sem andrúmsloftinu í flugvélinni er stýrt er það umtalsvert þurrara en við eigum að venjast og við verðum þess vegna mjög þurr í munni og nefi. Loftþrýstingurinn um borð þenur einnig út kinn- og ennisholurna og þar með minnkar næmni bæði bragð- og lyktarskyns. Um leið og munnurinn þorna og flæði munnvatns minnkar hættum við að nema sætu- og saltbragð og í raun verður flest frekar bragðlaust í okkar muni.
Þótt fáir tengi heyrnina við það hvernig við upplifum mat hefur hávaðinn í flugvélinni engu síður áhrif. Því meiri hávaði sem er í kringum okkur, hvort sem við erum í háloftunum eða á jörðu niðri, þess erfiðara eigum við með nema það sem við almennt teljum gott bragð, það sem Japanir kalla umami og er orð yfir þetta ólýsanlega góða bragð sem við fáum úr sumum réttum. Þetta er skýringin á því hvers vegna við njótum þess flest meira að borða á veitingastöðum þar sem tónlistin er lágvær og þægileg en þar sem mikill hávaði og glaumur er í kringum okkur.
Hvað á þá að taka með?
Ef þú kýst að fara þá leið að taka með þér nesti hvort sem það er til að spara eða forðast vondan mat hafðu þá í huga hvaða réttir halda bragðgæðunum eftir að flugvélin hefst á loft. Hér eru nokkrir:
- Pasta salat með sítrónu vínagrette, ólífum og parmesan.
- Salat með grilluðu grænmeti, ostakubbum, kjúklingi og balsamik-dressingu.
- Heimabakaðar bollakökur með hnetum, möndlum, rúsínum eða berjum.
- Ristaðar kjúklingabaunir, ristuð fræ eða brauðteningar.
- Brauð með hummus og sólþurrkuðum tómötum.
- Jógurt með granóla og ávöxtum.
- Samlokur með eggjum eða eggjasalati.
- Grillaðar kjúklingabringur með léttu meðlæti.
Nú svo er sjálfsagt að hafa meðferðis litla poka af kartöfluflögum eða öðru snakki, niðurskorna ávexti, rúsínur, súkkulaði, þurrkuð epli eða apríkósur.







