Hörpuskel í paprikubolla á allra færi!

Forréttur fyrir fjóra:

10-16 stk. hörpuskelfiskur

2 fallegar paprikur

3 msk. ólífuolía

1-2 hvítlauksrif, sneidd

gott pestó

rifinn parmesanostur

Skerið paprikurnar í tvennt eftir endilöngu og fræhreinsið þær. Gætið þess að stinga ekki á þær göt. Látið 1 msk. af olíunni í hvern helming og dreifið hvítaukssneiðunum í botninn á þeim. Látið í eldfast fat og setjið í ofn við 175°C í 30 – 40 mín. Gætið þess að paprikurnar brenni ekki. Hreinsið hörpuskelina og þerrið. Létt saltið og piprið skelfiskinn rétt áður en hann er settur ofan í paprikuhelmingana, þ.e.  þegar 5-7 mín. eru eftir af eldunartímanum og látið 1 tsk. af pestói þar ofan á. Síðan er rifnum parmesanosti dreift yfir áður en rétturinn er borinn fram. Þessi réttur veldur ekki vonbrigðum!

Ritstjórn október 15, 2021 09:00