Er nokkuð gómsætara og betra en fersk ber, jarðarber, bláber, kirsuber, hindber, brómber og hvað þau heita öll? Þau eru mátulegur munnbiti og svo einstaklega handhæg að það er ekkert skrýtið að alls konar ber séu söluhæstu ávextir í ferskvörudeildum allra stórmarkaða. En það er ekki eini kosturinn. Í hverju beri er ómæld hollusta fyrir líkamann.
Flesta ávexti aðra þarf að afhýða og skera niður en ekki berin. Þau er nóg að skola og henda svo yfir hafragrautinn, út í jógúrtina, súrmjólkina, ab-mjólkina eða chia-grautinn. Nú svo má setja slatta í skál og borða eins og snakk yfir sjónvarpinu. Þau eru líka frábær í eftirrétti, kökur, salöt og sultur. Möguleikarnir eru óendanlegir og ber ættu að vera hluti af daglegum kosti flestra. Nú skulum við líta á hvað berin gefa okkur helst:
Sólber – mjög rík af C-vítamíni.
Hindber – eru trefjarík.
Bláber – sérlega góð fyrir heilann og hjartað.
Jarðarber – góð uppspretta mangans og fólats.
Kirsuber – B-vítamín og litarefni sem draga úr bólgum í líkamanum.
Brómber – K- og A-vítamín.
Hversu mikið má borða af berjum yfir daginn?
Mælt er með um það bil 80 g af berjum á dag eða um það bil lúkufylli. Ef fólk er að borða þurrkuð ber t.d. trönber er um það bil 30 g nóg til að fá vel upp í dagskammtinn af trefjum og vítamínum. Ef fólk notar ber út í smoothie má miða við það sama.
5 leiðir til að bæta berjum í daglegan kost
Setja frosin eða fersk ber út á hafragrautinn
Hræra litlum berjum saman við hreina jógúrt eða skyr.
Skella berjum og möndlumjólk í blandarann í eftirmiðdaginn. Fyrirtaks hressing.
Setja jarðarber eða vínber út í salatið með kvöldmatnum.
Eiga alltaf frosin ber í frystinum og nota þau í alls konar eftirrétti.
Í berjum er litarefni, antósýanín eða jurtablámi, en þetta efni hefur þann eiginleika að draga úr bólgum í líkamanum og vísindamenn hafa einnig fundið tengsl milli heilbrigðis hjarta- og æðakerfis og þessa litarefnis. Það hjálpar svo til við að halda blóðflæði til heilans óhindruðu. Það hjálpar fólki einnig að halda niðri blóðþrýstingi og jafnvægi í blóðsykri. Auk þess eru ber mjög trefjarík og flestir á Íslandi þurfa að borða meira af trefjum. Þær viðhalda heilbrigði þarmanna og þarmaflórunnar sem aftur er einstaklega mikilvæg fyrir ónæmiskerfið og nýlegar rannsóknir benda einnig til að fjölbreytt og heilbrigð þarmaflóra létti lundina og vinni gegn þunglyndi. Nú þegar við erum á leið inn í skammdegið er það verðugt umhugsunarefni.
Það þarf sennilega ekki lengur vitnanna við það mælir allt með því að borða meira af berjum. Ber eru fáanleg hér allt árið bæði fersk og frosin en engin afsökun fyrir að nýta sér ekki þá góðu kosti sem þau hafa.







