Í skráðri sögu Evrópu hafa ávallt verið til stórveldi sem keppa hvert við annað og svo smærri einingar inni á milli sem hafa minna vald. Hvernig reiðir þessum ríkjum af? Er betra að vera á áhrifasvæði stórveldis eða utan þess?
Heimsmálin verða í brennidepli á næsta Fræðakaffi þar sem Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, veltir upp ýmsum áhugaverðum spurningum. Fræðakaffið er öllum opið og fer fram á Borgarbókasafninu Spönginni, mánudaginn 16. nóvember kl. 16:30 – 17:30.
Á okkar dögum takast stórveldin á um áhrifasvæði á útjaðri álfunnar, allt frá Úkraínu til Grænlands. Hvað getur sagan sagt okkur um hvernig þeim muni reiða af?
Valur Gunnarsson er sagnfræðingur og hefur skrifað fjölda bóka, þar á meðal Bjarmalönd og Grænland og fólkið sem hvarf. Nýjasta verk hans nefnist Frelsisbjarmar og fjallar um Bandaríkin á okkar öld.
Fræðakaffi er viðburðaröð sem fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni og hefur notið mikilla vinsælda.







