Gömul sál með það markmið að vera ung í anda

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er ung kona en segist hugsanlega vera gömul sál. Margt er til í því ef í þessu skrýtna orðasambandi felst að fólk ígrundi lífið, vilji finna í því tilgang og dýpt. Ragnheiður Harpa er þeirrar gerðar og hefur nýtt margskonar listsköpun til að víkka eigin hugmyndir og skilning. Ný ljóðabók hennar, Deig, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.

Deig er yfirskrift nýrrar ljóðabókar þinnar en þar fjallar þú um minningar, breytileg æviskeið mannsins og verðmætin í hversdagslegum augnablikum. Tengist titillinn því að einhverju leyti, þ.e. ertu að segja að við getum mótað lífið, minningarnar og hvert æviskeið fyrir sig eins og deig?

„Já, í raun, en líka um það sem mótar okkur. Ég áttaði mig ekki á þessu fyrr en bókin var fullgerð. Titillinn kom eiginlega síðast, en hann er sóttur í fyrsta ljóð bókarinnar sem hefst svona: „Í nótt dreymdi mig að ég fæddi hvítt deig.“ Manneskjan er að einhverju leyti deig alla ævi, stöðugt að breytast, mótast og verða til að nýju. Bókin fjallar meðal annars um líkamann, tímann og minningarnar, það sem mótar okkur hverju sinni og töfrana í ólíkum æviskeiðum. Ég hef mikið hugsað um hvernig ljóð geta auðgað hversdaginn, verið eins konar litlir fegurðarpunktar í tilverunni, fengið okkur til að staldra við og sjá eitthvað kunnuglegt í nýju ljósi. Mér finnst líka áhugavert hvernig ljóð geta brúað bilið á milli kynslóða. Hvernig minningar, hlutir og hversdagsleg augnablik geyma sögur sem halda áfram að lifa með okkur,“ segir hún.

Auglýsing

Hefur skrifað frá því hún lærði að draga til stafs

Það er frekar algengt að konur byrji seint að gefa út skáldskap sinn og margar hafa skrifað fyrir skúffuna stóran hluta ævinnar. Þess vegna er gaman að sjá svo unga konu stíga fram á ritvöllinn og fá svona góðar viðtökur. En hefur þú skrifað lengi?

„Ég hef skrifað frá því ég lærði að skrifa. En ekki þannig að ég vissi alltaf að mig langaði til að verða höfundur. Ég skrifa til að átta mig á heiminum, tilfinningum og því sem gerist í kringum okkur. Smám saman áttaði ég mig á galdri bókanna, að geta kannað hugarheima og ferðast um með því einu að lesa texta. Þessar myndir sem kvikna og hverfa við lesturinn. Þarna var einhver galdur sem ég dróst að og dregst enn að af sama krafti. Að skrifa er að lesa. Ég held að það sé eiginlega ekki hægt að skrifa án þess að lesa.“

Ljóðið valdi hana

Ragnheiður Harpa er ekki einhöm þegar kemur að listsköpun. Hún hefur lokið meistaranámi í ritlist og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með gráðu í fræði og framkvæmd. Það kemur því ekki á óvart að hún hefur skrifað leikrit, er hluti af höfundakollektívinu Svikaskáld og unnið með þeim en einnig skrifað smásögur og ljóð ein og sér. En hvers vegna valdi hún ljóðformið að þessu sinni?

„Mér finnst frekar að það hafi valið mig,“ segir hún. „Ég settist aldrei meðvitað niður og hugsaði: Nú ætla ég að verða skáld. Ljóðin koma bara, eins og þau banki á öxlina. Stundum flæða þau fram, en stundum er ég lengi með þau. Þótt þau séu sjaldnast fullmótuð þegar þau birtast er þar einhver vísir að einhverju sem mig langar að fylgja eftir. Ég heillast af ljóðum og elska að lesa ljóð sem tala til mín. Hvernig hægt er að miðla einhverju með örfáum orðum, jafnvel einhverju sem varla er hægt að festa á blað.

En ég fór ekki að skrifa ljóð af ráði fyrr en ég fór að lesa meira af þeim. Það var eitt af því sem ég lærði í ritlistarnáminu í háskólanum, að leita uppi þá höfunda sem töluðu til mín. Við erum öll ólík og það eru ólíkar bókmenntir sem ná til okkar.“

Æviskeiðin eru mörg

Nú ertu ung manneskja. Hvers vegna eru mismunandi skeið lífsins þér hugleikin? Flestir fara ekki að hugsa til miðaldurs og elli fyrr en aldurinn tekur að færast yfir.

„Ætli ég sé ekki gömul sál, en með það markmið að vera alltaf ung í anda,“ segir hún og hlær við. „Mér finnst ég standa á einhverjum þröskuldi, ung en samt ekki ung. Ég á þrjú ung börn og þótt ég sé kannski ekki orðin gömul hef ég upplifað ýmislegt, bæði sjálf og í gegnum fólkið í kringum mig.

Æviskeiðin eru mörg og í bókinni birtast þau á ólíkan hátt. Í fyrsta hlutanum, Heima, fjalla ég um hjúp nýs lífs, þegar heimilið verður að heimi út af fyrir sig og allt er mjög nálægt. Annar hlutinn, Eyjan, fjallar um bernskuminningar ljóðmælanda, þar sem minningar sullast saman og mynda eins konar efnislega eyju.

Síðasti hlutinn, Borgir, fjallar svo um þessi ár þegar við köstum okkur út úr örygginu, þráum að upplifa allt í einu, erum ungar manneskjur og þyrlum okkur út í ókunnugar borgir. Kannski er ég líka að reyna að átta mig á því hvernig öll þessi æviskeið búa áfram innra með okkur, þótt við færumst frá einu til annars.“

Og enn hefur Ragnheiður Harpa kosið að reyna sig við nýja leið. Þú hefur skrifað barnabók líka. Ertu með fleira í smíðum?

„Já, barnabókin Eyja og sólarsteinninn kemur líka út nú í haust og í henni eru þræðir sem hægt er að tengja við ljóðin. Báðar bækurnar hafa verið í smíðum í þrjú til fjögur ár. Það var mikið ævintýri að búa barnabókina til. Þar sem ég hef aldrei áður skrifað barnabók er ég dálítið feimin við hana. Ég er orðin aðeins æfðari í ljóðunum, en ég vona að hún rati til þeirra barna sem henni er ætluð. Svo er ég alltaf að vinna að einhverju. Á haustin kviknar í einhverjum neista. Verkefnið sem ég er með á teikniborðinu núna er mín fyrsta nóvella, en hún gerist öll á einni nótt þegar tveir vinir hittast í fyrsta sinn í tuttugu ár á næstum mannlausu hóteli,“ segir hún.

Það verður spennandi að lesa þá nóvellu þegar hún kemur og bíða þess að sjá hvar Ragnheiður ber niður næst.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.