Búa illir andar í vatninu djúpa?

Vatnið er kalt, dimmt og djúpt en býr eitthvað illt í því? Þar hafa óvenjulega margar manneskjur drukknað eða svo virðist við fyrstu sýn. Yrsa Sigurðardóttir er með einstaklega spennandi og bók í ár, Mara, er spennandi, hrollvekjandi og með skemmtilega flókinni fléttu sem gaman er að rýna í allt til loka. Margt kemur jafnvel snjöllustu glæpasagnaaðdáendum á óvart og svo er samspil persónanna og persónusköpunin einstaklega góð.

Líkt og ávallt í bókum Yrsu kemur hún að sögunni frá mörgum sjónarhornum. Að þessu sinni kynnumst við fyrst ungri konu, Helenu, sem bíður spennt eftir að vita hvort hún eða samstarfsmaður hennar hljóti stöðuhækkun í vinnunni. Þá er skipt yfir á Sigrúnu, móður sem hefur verið sannfærð um það frá því hún fékk son sinn, Tóta, nýfæddan í fangið að eitthvað hræðilegt slys muni henda hann og hún vaktar hann af mikilli árvekni. Kafarinn Gísli birtist næstur og rifjar upp köfun niður að flaki flugvélar á botni vatnsins, dimma og kalda, en sú sýn er mætti honum þar leitar enn á hann, einkum ung kona, Helena, úr hópi þeirra er létust í slysinu. Árný er sálfræðingur skólans sem Tóti gengur í og þegar hann og Viktoría skólasystir hans fara niður um ís á vatninu dularfulla og drukkna en eru lífguð við býður hún börnunum áfallahjálp en dregst fljótlega inn í alla málvexti er varða eftirköst slyssins því börnin sem vöknuðu eftir að þeim var bjargað úr vatninu eru ekki þau sömu og fóru niður í gegnum ísinn.

Yrsa Sigurðardóttir á enn óskorað titilinn drottning íslenskra glæpasagna. Hún er ansi snjöll í að búa til frábæran söguþráð og flétta saman margar sögur. Hér er hún í essinu sínu. Þessi bók er spennandi, mátulega hryllileg og undirtextinn einkar snjall. Það er margt hér sem vekur áhuga, til dæmis hvernig það er að vakna aftur eftir að hafa verið vakinn upp frá dauðum? Er það til í dæminu að sú reynsla breyti persónuleika fólks? Yrsa kann líka öðrum betur að nýta sér skrýtnar tilviljanir og það hvernig tilviljanirnar geta stundum raðast saman á stórmerkilegan hátt. Henni tekst að gera þetta allt trúverðugt og sagan gengur fyllilega upp.

Auglýsing

Steingerður Steingarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.