Lífslíkur ríkra dana eru mun meiri en þeirra fátækustu. Nýlega var sýnd heimildamyndin „En syg forskel“ á DR 1 þar sem þetta kom fram. Að meðaltali lifir ríkasti hluti þjóðarinnar tíu árum lengur en sá fátækasti. Þetta er tvöfalt meiri munur en fyrir aldarfjórðungi. Prófessor Knud Juel hjá dönsku Lýðheilsustofnuninni segir að það sé tvennt sem skýri mun á lífslíkum ríkra og fátækra, reykingar og drykkja. Fátækir deyja oftar af sjúkdómum af völdum óhóflegrar drykkju og sjúkdómum sem tengjast reykingum, segir Juel. Það er þó einungis hluti skýringarinnar ef enginn reykti og enginn drykki væri samt munur á ævilíkum þessara hópa en hann væri tvöfalt minni en í dag. Ójöfnuður er talinn hafa aukist í dönsku samfélagi á síðustu árum. Aðrir þættir sem taldir eru skýra mun á lífslíkum er betra matarræði, meiri hreyfing og betri aðgangur hinna ríku að læknisþjónustu. Auk þess sem hinir ríku hafa oftar betri menntun en þeir sem berjast í bökkum. Lifðu núna er ekki kunnugt um að rannsókn hafi verið gerð á Íslandi á lífslíkum fátækra og ríkra en vissulega væri fróðlegt að sjá hvort að efnahagur hefur jafn mikil áhrif á lífslíkur og í Danmörku. Mbl.is birti hins vegar frétt um miðjan apríl þar sem sagði að eftir því sem menn yrðu ríkari yrðu þeir jafnframt líklegri til þess að lifa lengur og njóta betri heilsu. „Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem framkvæmd var á vegum Urban stofnunarinnar í Bandaríkjunum en gögnin voru fengin frá heilbrigðisyfirvöldum. Í rannsókninni kemur fram að mun sterkari tengsl séu á milli tekna og heilsu en kynþáttar og heilsu. Bandaríkjamönnum var skipt upp í fimm tekjuhópa og urðu lífslíkurnar ávallt betri eftir því sem tekjurnar urðu hærri. Niðurstaðan var sú sama nánast algjörlega óháð sjúkdómseinkennum. Í rannsókninni segir að ástæðurnar fyrir þessu séu nokkrar. Sú veigamesta er hins vegar að fjársterkir aðilar eiga almennt greiðara aðgengi að betri heilbrigðisþjónustu. Þá er heimilum þeirra einnig oftast betur viðhaldið. Í annarri rannsókn kom fram að tekjulágir séu líklegri til þess að vera stressaðir, áhyggjufullir, þunglyndir og reiðir heldur en þeir ríku. Auk þess sem tekjulágir eru líklegri til þess að þjást af svefnleysi, en allt þetta hefur áhrif á heilsufar manna,“ sagði í frétt Mbl.is en hana er hægt að nálgast hér.