Hinrik finnur fjölina sína

Ég er í hópi þeirra sem hlakkar alltaf til að opna nýja bók eftir Benný Sif Ísleifsdóttur. Það var því hrein yndisstund þegar loks gafst færi á að opna Vetrarþresti. Stundum veldur lífið manni vonbrigðum og það sem maður hafði mestar væntingar til reynist hrat fremur en sæt berjasaft en svo var sannarlega ekki í þessu tilfelli. Þetta er yndisleg bók, ein þeirra sem skilur eftir hlýju í sálinni, von og gleði í marga daga.

Hér er skrautlegt og dásamlegt gallerí aukapersóna. Sýslumannsdóttirin sem kann að skemmta sér og vefja valdsmönnum um fingur sér, mokarinn með sín framsæknu og óviðjafnanlegu viðhorf til íslensks votlendis, afgreiðslukonan í kaupfélaginu sem lætur sér ekki muna um að kenna einum karli að prjóna og nágrannakonan með sína lífspeki. Og svo margar fleiri. Mitt í þessu öllu er Hinrik, smámælti heildsalasonurinn og hótelstjórinn. Sligaður af lélegri sjálfsmynd og stefnuleysi í lífinu en samt svo laginn að finna leiðir til að hjálpa öðrum og bæta heiminn í kringum sig. Þegar hann kynnist Sindra, frjálslegum og athafnasömum dreng fara fyrstu hlekkirnir í kringum hjarta hans að bresta eins og hjá Járn-Hinriki í Grimms-ævintýrunum forðum. Lesandanum þykir vænt um Hinrik frá fyrstu síðu og áhyggjur af þessum viðkvæma dreng knýja mann áfram bókina á enda. Það má ekkert illt henda hann og mikið væri gott ef honum tækist að finna eigið virði, skynja hversu einstakur hann er.

Hinrik ræður þau Kalman og Agnetu til sín um leið og hann ákveður að kaupa hótelið, hann er kokkur og hún þerna. Bæði hafa upplifað harm. Kalman átti kærustu en eftir að bróðir Hinriks lítillækkar hana ái illkvittnislegan hátt flýr hún úr bænum og skilur hann eftir í ástarsorg. Agneta er send á stúlknaheimilið Klett vegna fátæktar og þess að stjúpfaðir hennar kærir sig bara um börn sem hann stofnar til sjálfur. Þar verður hún fyrir ofbeldi af margvíslegum toga meðal annars af hendi heildsalans, pabba Hinriks. En þau tvö verða upphafið að nýju lífi Hinriks.

Auglýsing

Benný Sif er snillingur í að skapa þannig persónur. Fólk sem við getum öll skilið og samsamað okkur við. Mismunandi brotnar og breyskar manneskjur í leit að tilgangi, leið í lífinu, útrás fyrir hæfileika sína og því að ná að skynja sjálfan sig og skilgreina. Hún hefur líka einstakt vald á íslensku máli og skrifar svo lítríkan og fallegan stíl. Þvílík orðgnótt og svo ótal mörg skemmtileg orð sem ýmist voru gleymd eða maður þekkti ekki áður. Allt fléttast þetta saman í lifandi frásögn og hótelið hans Hinriks, plássið, fólkið og umhverfið verður skýrt og kunnuglegt. Vetrarþrestir er yndisleg bók og hreinlega mannbætandi að lesa hana.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.