Fimm lítilvæg atriði sem geta miklu breytt

Stundum grípur fólk löngun til að gera róttækar breytingar á lífi sínu og það leggur af stað fullt áhuga en svo verður minna úr framkvæmdum. Þetta stafar af því að það að taka stór stökk fram á við er ekki alltaf raunhæft. Menn færast þá gjarnan of mikið í fang í einu, verða leiðir eða finna einfaldlega að þeir geta þetta ekki. En það má margt gera sem er lítið mál en getur bætt lífsgæðin til muna.

  1. Matur, drykkur og góðir vinir geta gert kraftaverk. Ef þér finnst líf þitt tómt og þig vanta meiri lífsfyllingu haltu skemmtilegt boð fyrir þá sem standa þér næst. Það er vel þess virði að leggja á sig erfiði við undirbúning því gott partí getur skipt sköpum. Veldu fyrst af öllu hópinn sem þú vilt hafa í kringum þig. Ákvedu einnig hvað þú vilt fá út úr boðinu. Langar þig að fá í gang umræður eða á þetta fyrst og fremst að snúast um gleði. Veldu þér síðan þema og láttu veitingarnar endurspegla það. Biddu gestina að koma undirbúna undir að taka þátt í þemanu.
  2. Dagleg rútína þín getur verið svo ströng að þú sért einfaldlega útkeyrð á hverju kvöldi. Þegar þannig er komið er stutt í kulnun og streitutengd vandamál. Skoðaðu alvarlega venjur þínar yfir daginn og taktu tíma til hvíldar og til að gera eitthvað sem þú hefur gaman af.
  3. Leitaðu til sérfræðings. Það hjálpar oft ósegjanlega að fá sýn hlutlausra aðila á það sem virðist í þínum augum óyfirstíganlegt og lokuð gildra sem engin leið er úr. Sálfræðingar, félagsfræðingar, námsráðgjafar og aðrir atvinnumenn hafa oft í hendi sér úrræði sem geta breytt öllu.
  4. Breyttu um umhverfi. Farðu í helgarferð út úr bænum, til útlanda eða annað. Ef þú átt ekki heimangengt farðu í heimsókn til vinar eða breyttu allri uppröðun húsgagna á heimilinu. Það getur nægt til að ferskir vindar nái að blása um hugskot þitt og þér finnist þú hafa endurnýjast.
  5. Hættu að vorkenna þér. Stundum er okkar eigin viðhorf til lífsins það eina sem þarf að breyta. Að velta sér upp úr vanlíðan sinni og neita að sjá nokkra lausn á málum það versta sem við gerum okkur. Stundum er ekki hægt að breyta aðstæðum en það er ávallt hægt að breyta því hvernig við lítum á þær.

Taktu ketti þér til fyrirmyndar

Taktu gæludýrin þín eða börnin þín þér til fyrirmyndar. Taktu eftir hvað þau gera í hvert sinn sem þau vakna eftir góðan blund. Þau teygja sig. Rísa hægt á fætur og teygja bæði á höndum, fótum og hrygg. Þetta er mjög hollt og hjálpar þér að halda vöðvunum mjúkum og löngum.

Gættu að hreinlæti

Hreinlæti skiptir miklu mái einkum á veturnar þegar inflúensutíminn er ríkjandi. Að þvo sér vel um hendurnar nokkrum sinnum á dag getur komið í veg fyrir að maður smitist af umgangspestum. Að bursta tennurnar vel er annað gott ráð til að tryggja góða heilsu. Bakteríur berast oft úr munninum og ofan í meltingarveginn en með því að bursta vel má koma í veg fyrir það.

Þjálfaðu heilann

Heilann þarf að þjálfa líkt vöðva líkamans. Eitt af því sem heldur honum í góðu formi er að bjóða honum upp á eitthvað nýtt. Prófaðu til dæmis að gera hlutina með vinstri hendinni ef þú ert rétthent og öfugt ef þú ert örvhent. Reyndu einnig að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Það þjálfar viðbrögð heilans og það hefur sýnt sig að fólk sem er að læra alla ævi þjáist síður af Alzheimer-sjúkdómnum og minnisleysi þegar þeir eldast.

Sterkur matur veitir gleði

Sýnt hefur verið fram með rannsóknum að sterkur matur, t.d. kryddaður chili-pipar, karríi eða cayenne-pipar hvetur framleiðslu vellíðunarboðefna í líkamanum. Sterkur pipar örvar einnig meltinguna. Það gæti þess vegna verið gott tækifæri til að prófa eitthvað nýtt að reyna að venja sig á að borða sterkkryddaðri mat en venjulega með því að hafa eina slíka máltíð í hverri viku.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.