Enginn sá hundinn, er ný barnabók eftir Hafstein Hafsteinsson, en þar segir hann sögu í bundnu máli. Vísurnar eru eftir Bjarka Karlsson höfund metsöluljóðabókarinnar Árleysi alda. Bókin fjallar einmitt um þetta efni, að enginn sá hundinn, sem börnin fengu í jólagjöf í fyrra og höfðu svo gaman af að leika sér við. Það komu nefnilega aftur jól og nýjir pakkar, en í þeim voru hvorki hvolpar né rakkar, heldur bakkar.
Bakkar?
Já, glitrandi bakkar
úr gleri og áli
og grjóthörðu stáli.
segulstáli,
svo sterku að öll voru
yfir því bundin
..og enginn sá hundinn.
Fjölskyldan fór þó
í ferðalög stundum
en góndi á glerið
og gleymdi öllum hundum.
Allt sem þeim áður fannst
alltaf svo gaman
var horfið og farið
þó færum við saman
því þau voru alltaf með álið í framan.
Jafnvel í sundi!
Er engin leið fyrir lítinn rakka
að láta nú krakka
huga að hundi?
Andlitið á þeim er aðeins í kafi
ofan í bakka,
andlitsbakka.
Þá kviknaði ljós!
Nú læt ég þau sjá mig!
nú læt ég þau aldeilis
svei mér þá sjá mig!
Og hundurinn grípur til sinna ráða í þessari skemmtilegu sögu sem er skreytt skemmtilegum myndum eftir höfundinn sjálfan Hafstein Hafsteinsson.