Á leið í jólaboð fjölskyldunnar þarf aðalsöguhetjan í Míkadó að þola barsmíðar bróður síns, bíta saman tönnum til að passa að sársaukastunur eða óp sleppi ekki út. Hún veit að ef hún lætur eitthvað uppi bíður hennar annað verra. Þessi byrjun á nýrri skáldsögu Gerðar Kristnýjar er feykilega sterk og athygli og áhugi lesandans er strax vakinn.
Framhaldið veldur svo sannarlega ekki vonbrigðum. Það er ellefu ára stúlka sem segir frá. Fjölskylda hennar er í forgrunni og aðstæður innan hennar minna á spilið Míkadó, ef ekki er farið varlega hreyfist pinnahrúgan og sá sem setur allt af stað er úr leik. Sagan gerist á nokkurra mánaða tímabili og það er strax ljóst að litla stúlkan býr ekki við mikið ástríki. Pabbi hennar og mamma eru bæði upptekin af sínu og hafa hvorki getu né hæfni til að sinna barninu. Hún býr ýmist við algjört afskiptaleysi eða aðfinnslur og skammir. Högni, bróðir hennar, nýtur hugsanlega meiri athygli og ástúðar, í það minnsta frá móður sinni, en hann er líka markaður af ofbeldinu níðist miskunnarlaust á systur sinni.
Sagan gerist mánuðum á níunda áratug síðustu aldar og þótt margt sé breytt hefur maður á tilfinningunni að svipað andrúmsloft sé ríkjandi á sumum heimilum enn í dag. Aðstæður söguhetjunnar okkar eru nístandi sárar og oft súrnar lesandanum í augum við lesturinn. En það er ljós í myrkrinu. Hún á auðvelt með að eignast vini, hún er hæfileikarík og þótt hún óski þess að allt væri eins og reikningur því þar liggi aldrei fiskur undir steini og aðeins eitt svar rétt, á hún von.
Gerður Kristný er í hópi okkar allra bestu höfunda og þessi nýja saga gríðarlega vel skrifuð og uppbyggð. Hún er spennandi og lesandinn rekinn áfram á umhyggju fyrir aðalpersónunni, tungmálið er einstaklega litríkt og lifandi. Gerði er einkar lagið að setja sig inn í hugarheim barna og allar líkingar og myndir sem hún dregur upp eru bæði frumlegar og svo í takt við það sem barn á þessum árum gæti hafa hugsað að stundum er varla annað hægt en að grípa andann á lofti af aðdáun. Mikið er ég glöð yfir að hægt sé að skapa svona sterkar sögur og fara svona vel með tungumálið okkar. Míkadó hefur bæst í þann stafla bóka sem ég hef alltaf innan seilingar og les aftur og aftur.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







