Robert Langdon á mörkum lífs og dauða

Það er alltaf fengur að nýrri bók eftir Dan Brown. Hann hefur sérhæft sig í að skapa sakamálasögur þar sem forn tákn, helgisiðir, leynireglur og nútímatækni koma saman og skapa flókinn söguþráð. Í nýjustu bók sinni tekst hann á við hinn æðsta leyndardóm allra dulmagna dauðann.

Robert Langdon er staddur í Prag ásamt vinkonu sinni, Kathrine Solomon. Hún hefur um árabil rannsakað skyggni og yfirskilvitlegar skynjanir. Allt það sem mennirnir geta ekki skýrt með rökum eða sannað eða afsannað á áþreifanlegan hátt. Robert fer út að hlaupa að morgni og leið til baka mætir hann dularfullri veru á Karlsbrúnni og ekki nóg með það hann skynjar allt í einu og veit að sprengja er á hótelinu þar sem hann dvelst. Svo sannfærður er hann um þetta að hann stekkur út í ískalda Vitava-ána. Þegar Kathrine hverfur flækist Robert inn í rannsókn á bæði hvarfinu og dauða tékkneskrar vísindakonu.

Þetta er æsispennandi og skemmtileg bók. Dan Brown er ævinlega vel heima í þeim fræðum sem hann tekst á við hverju sinni og alltaf áhugaverðan fróðleik að finna í sögum hans. Hér mynda heimspekilegar vangaveltur um tilgang lífsins, mannsandann og skynjun okkar athyglisverðan undirtón þótt ráðgátan um hvarf einnar konu og dauða annarrar sé í forgrunni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.