Tengdar greinar

Getur verið að þú sért með bakflæði?

Á vefnum Heilsuveru er ný grein um bakflæði, en það lýsir sér þannig að innihald  magans rennur til baka upp í vélinda. „Þetta er vel þekkt ástand, sem veldur óþægindum en er sjaldnast hættulegt“ segir í greininin sem birtist hér fyrir neðan. Þar segir einnig að við langvarandi bakflæði sé hætta á skemmdum á slímhúð vélindans og því ástæða til að ráðfæra sig við lækni þegar áhyggjur vakna.

Helstu einkenni bakflæðis eru eftirfarandi samkvæmt greininni:

  • Brjóstsviði
  • Uppþemba
  • Hæsi
  • Nábítur
  • Hóstakjölt
  • Kyngingarörðugleikar

Einkennin geta versnað eftir máltíðir eða ef fólk leggst niður eða beygir sig.  Um orsakir bakflæðis segir í greininni:

Á milli vélinda og maga er sterkur hringvöðvi sem kemur í veg fyrir að magainnihald renni til baka úr maga og upp í vélinda. Þegar þessi vöðvi starfar ekki eðlilega er talað um bakflæði eða vélindabakflæði. Það er ýmislegt sem getur orsakað það að vöðvinn starfi ekki eðlilega t.d. ofþyngd, þindarslit og meðganga. Þá eru nokkrar fæðutegundir sem auka sýrumyndun í maga en það er einkum sterkur, brasaður og feitur matur. Kaffi, áfengi, nikótín og súkkulaði veikir hringvöðvann og eykur hættu á bakflæði.

Slímhúð vélindans þolir illa súrt magainnihald og því er hætt við bólgu og jafnvel blæðandi sárum ef ekkert er að gert.  Kyngingarörðugleikar geta verið vísbending um að örvefur hafi myndast sem þrengir vélindað“.

Ef grunur er um fólk sé með bakflæði er sjúkdómssaga þess skoðuð, að því er fram kemur í greininni. Oft eru teknar röntgenmyndir og menn jafnvel sendir í speglun. Þá er einnig algengt að gerðar séu þrýstings- og sýrumælingar í vélinda til að skoða hvort og hversu mikil áhrif séu af bakflæðinu. En getur fólk eitthvað gert til að koma í veg fyrir bakflæði? Um það segir í niðurlagi greinarinnar:

Hvað get ég gert?

  • Forðast að neyta fastrar fæðu 3-4 klst fyrir svefn
  • Forðast sterka, brasaða og feita fæðu
  • Forðast áfengi og tóbak
  • Draga úr kaffi-, súkkulaði- og mjólkurneyslu
  • Forðast súra ávexti
  • Borða hæfilega mikið í einu (forðast ofát)
  • Forðast þröng föt
  • Stefna að og halda kjörþyngd
  • Sitja vel uppi við og eftir máltíðir
  • Hækka höfðalag

Hvenær skal leita aðstoðar?

Ef þér tekst ekki að ná tökum á bakflæðinu með almennum ráðum er rétt að leita til heilsugæslunnar.

Læknir ráðleggur stundum lyf sem draga úr bakflæði.  Sum eru lyfseðilsskyld, önnur fást án lyfseðils. Annars vegar eru það lyf er flýta magatæmingu niður í skeifugörn og hins vegar lyf sem draga úr sýrumyndun magainnihalds.

Þú getur haft samband við heilsugæsluna ef þig vantar stuðning til að efla heilsu, auka lífsgæði eða eða þig vantar hjálp til að ná betri stjórn á aðstæðum þínum“.

 

Ritstjórn mars 10, 2022 07:00