Fiskur er hollur og góður matur. Nýjar rannsóknir vísindamanna sýna að þeir sem borða mikinn fisk eiga síður á hættu að fá brjóstakrabba eða hjartasjúkdóma og finna sjaldnar fyrir þunglyndi en hinir sem borða helst kjöt. Fisk er auðvelt og fljótlegt að matreiða og hægt að gera úr honum ótrúlega fjölbreytta rétti.
Yfir 2000 rannsóknir hafa verið gerðar á hollustu omega-3 fitusýra sem fiskur inniheldur í ríkum mæli og niðurstöðurnar gefa óyggjandi til kynna að fátt sé hollara. Nýjustu rannsóknir benda til að í fiski einnig efni sem dragi úr líkum á að menn fái alzheimersjúkdóminn, hjartaáföll og fleiri sjúkdóma auk þess að auka mönnum bjartsýni og andlegt þrek. Erlendir næringarfræðingar eru farnir að mæla með að fiskur sé á matseðlinum minnst þrisvar í viku og segja að séu menn að hugsa um hollustu matarins sé best að venja sig á að borða mikinn fisk.
Í sérstakri rannsókn sem gerð var á áhrifum omega-3 á brjóstakrabba kom í ljós að taki vestrænar konur inn allt að 10 g af fiskolíu á dag breyti það vefjagerð brjósta þeirra og geri hana líkari vefjagerð austurlenskra kvenna en tíðni brjóstakrabba meðal Asíubúa er aðeins þriðjungur þess sem hún er á Vesturlöndum. Til að ná þessu magni úr fæðunni þyrfti að borða lax, túnfisk, makríl eða lúðu sjö sinnum í viku en sérfræðingar segja að það sé hollara að líkaminn vinni næringuna sjálfur úr matnum en að taka inn fæðubótarefni.
Vinnur gegn vægu þunglyndi
Vægt þunglyndi er ákaflega algengt og flestir finna fyrir því einhvern tíma á ævinni. Nú hefur verið sýnt fram á að fiskát dregur úr þessum köstum og flýtir fyrir að vanlíðanin gangi yfir því í löndum þar sem meira er borðað af fiski en í henni Ameríku er hlutfallið mun lægra jafnvel allt niður í einn af hverjum tíu (í Japan). Í fiski er auk þess efni sem heitir „taurine“ og allt bendir til að það dragi úr kvíða. Þetta telja vísindamenn skýringuna á því að fiskætur sýna færri streitueinkenni en hinir.
Til eru margar gerðir omega-3 fitusýra og heitir hver sínu nafni. Ein þeirra DHA hefur hvetjandi áhrif á heilavefsfrumur og 40% minni líkur eru á að eldra fólk sem hefur mikið af DHA í líkamanum fái alzheimersjúkdóminn en þeir sama hafa minna. DHA hefur auk þess hvetjandi áhrif á framleiðslu boðefna í heilanum og fiskur inniheldur mikið af DHA.
Þarf nú lengur vitnanna við heldur ætti að vera augljóst að aðalgrillmaturinn í sumar verður lúða, lax og steinbítur. Margir kjósa einnig túnfisksteikur en þær eru algjört sælgæti. Fiskinn er gott að marínera til dæmis í legi gerðum úr sítrónusafa, ólífuolíu, hunangi og kryddi. Sesamfræ eiga sömuleiðis mjög vel við fisk og gefa gott bragð séu þau grilluð með. Það má einnig setja nokkra dropa af sesamolíu í maríneringuna. Gott er að grilla fiskbita í álbökkum, heilan fisk í þar til gerðum grindum en feitan, þéttan fisk eins og lax og lúðu má setja beint á grillið.
Næringarefni og omega-3 fitusýrur í fiski draga úr líkum á að fólk fái: alzheimersjúkdóminn, ýmsa hjartasjúkdóma, þunglyndi og brjóstakrabba. Fiskur er auk þess tiltölulega fitulítill og gómsætur matur.
Góð marínering á fisk
safi úr einni sítrónu
½ bolli ólífuolía
2 tsk. salt
1 tsk. pipar
2 – 3 tsk. hunang (eða púðursykur)
sesamfræ eftir smekk
Öllu er hrært saman og fiskurinn látinn liggja í maríneringunni í minnsta kosti 2 klst.