Margir finna fyrir aukinni kulvísi með auknum aldri, þetta er t.d. algengt meðal kvenna eftir að breytingaskeiðinu lýkur. Þetta er vel þekkt fyrirbæri og ungum konum gjarnan strítt ef þær kvörtuðu undan kulda og þær spurðar hvort í þær væri kominn kerlingarkuldi, en það var andstæða jómfrúarhitans. Hins vegar eru margar ástæður fyrir því að fólk finnur meira fyrir kulda eftir því sem það eldist og kerlingar ekkert síður en kallar finna fyrir kulvísi.
Brennsla fólks hægist með árunum og það þýðir að það gengur hægar að ná upp og viðhalda hita í líkamanum þegar kalt er úti eða innandyra. Þetta getur verið alvarlegt mál og í kuldaköstum úti í heimi deyja að jafnaði 5-7 aldraðir einstaklingar vegna þess að þeir þola ekki kuldann. Húshitun er víða háð dýrum orkugjöfum og eldra fólk hefur kannski ekki allt efni á að kynda til að vinna á móti kuldanum. Hér á landi er auðvitað lítil hætta á að það gerist en margir verða engu að síður varir við að húshitunarkostnaðurinn verður sífellt hærri eftir því sem þeir eldast.
Til að vinna gegn aukinni kulvísi er fólk hvatt til að hreyfa sig. Hreyfingin eykur brennsluna og viðheldur vöðvamassanum en það tryggir hraðari brennslu í líkamnum. Að borða hollan og fjölbreyttan mat hjálpar líka og kemur í veg fyrir miklar blóðsykursveiflur. Fari blóðsykurinn niður er algengt að fólk finni ýmist fyrir kulda eða hita líkt og í hitakófum. Þegar brennsla hefst hitnar fólki að innan og stundum getur því verið gott að borða hollan millibita sé mönnum mjög kalt. Heitir drykkir, súpur og heitar sturtur eru sömuleiðis góð leið til að halda á sér hita.
Sjúkdómar og lyf sem minnka blóðflæði
Kjarnhiti líkamans lækkar í sumum tilfellum með árunum og það gerir það ennfremur að verkum að fólk finnur fyrr og meira fyrir kulda. Eftir fimmtugt missir meðalmanneskjan um það bil 10% af vöðvamassa sínum á hverju tíu ára tímabili. Þess vegna er svo mikilvægt að lyfta lóðum og gera styrktaræfingar út ævina. Vöðvarnir framleiða um það bil fjórðung varmans í líkamanum þegar við sitjum kyrr, liggjum eða stöndum.
Blóðrásarkerfið veikist einnig eftir því sem fólk verður eldra og vegna þess að blóðflæðið hægist berst minna af næringu og hita um líkamann og til húðinnar. Fitulagið undir henni þynnist líka með árunum, veitir þess vegna minni einangrun og húðin verður kaldari viðkomu. Þetta þýðir líka hraðara hitatap í gegnum húðina.
Nokkrir algengir sjúkdómar geta valdið aukinni kulvísi þar á meðal eru, vanvirkni í skjaldkirtli, blóðleysi, sykursýki og hjarta og æðasjúkdómar. Allt þetta hefur áhrif á hæfni líkamans til að viðhalda hita og færa ylinn um æðar líkamans. Sum lyf hafa sömuleiðis þær aukaverkanir að líkamshitinn verður minni þeirra á meðal eru blóðþynningarlyf og betablokkar.
Freistast til að spara
Það er gott að hafa í huga að hvaða hreyfing sem er getur hjálpað, aukið blóðflæðið og unnið gegn kulda. Hægt er að sitja á stól og hreyfa handleggi eða fætur á hvern þann hátt sem menn geta og þannig komið blóðinu af stað. Að ganga um gerir líka mikið.
Víða erlendis freistast eldra fólk til að reyna að spara húshitunarkostnað og það getur valdið því óþægindum og heilsutjóni. Hér á landi er minni hætta á slíku en með viðvarandi verðbólgu og sífellt hækkandi verðlagi kann að koma að því að eldra fólk á Íslandi reyni að spara við sig heita vatnið og líði þess vegna illa heima hjá sér í verstu vetrarkuldunum. Ef sú er raunin er íslenska ullin góður vinur og ullarsokkar, hnepptar lopapeysur og notalegar værðavoðir góð leið til að halda á sér hita. Þykkari gluggatjöld skapa einnig góða einangrun gegn kulda og með því að loka hurðum er hægt að koma í veg fyrir gegnumtrekk.
Fólk sem þjáist af heilabilun skynjar hita og kulda oft ekki á sama hát og aðrir. Það þarf því að fylgjast vel með ef aðstandandi glímir við þann vágest og gæta þess að honum verði ekki of kalt. Ekki er víst að hann klæði sig nógu vel eða geti brugðist við sé honum kalt. Heilabilun hefur áhrif á hæfni heilans til að vinna úr skilaboðum taugafrumunum og fólk verður viðkvæmara en ella fyrir alls konar áreiti. Þess vegna gæti ull verið óþægileg viðkomu fyrir heilabilaða. Það gæti því verið gott að velja önnur efni fyrir þá og hjálpa þeim að klæða sig í þrjú lög af fatnaði.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðun núna skrifar.







