Hvers vegna fáum við svima?

Margir af eldri kynslóðinni finna stundum fyrir svima, þetta á ekki síst við elstu kynslóðina. Heilsuvera birti nýlega grein um svima og helstu orsakir hans. Heilsuvera er frábær vefur sem birtir margvíslegar heilsufarsupplýsingar og  gerir fólki til dæmis líka kleift að panta tíma hjá lækni á heilsugæslustöðvum eða sjá hvaða lyf þeir eiga í apótekinu.

Í greininni á Heilsuveru segir að svimi sé þegar einstaklingur upplifir falska skynjun á hreyfingu.  Þannig geti svimi stundum lýst sér þannig að það er eins og umhverfið snúist, eða  það sé erfitt að halda jafnvægi. Mönnum getur líka þótt sem það sé að líða yfir þá. Oftast gengur þetta ástand hratt yfir og er sjaldnast hættulegt, en getur verið óþægilegt, segir í greininni þar sem orsökum svima er lýst.

Orsök svima getur verið margskonar t.d.

Aukaverkun af lyfjum

Einkenni frá innra eyra t.d. vegna sýkingar og/eða vökvasöfnunar

Hjarta og æðasjúkdómar

Járnskortur

Kvíði

Lágur blóðsykur

Lágþrýstingur

Mígreni

Taugasjúkdómar

Vöðvabólga í hálsi og herðum

Vökvaskortur

Fólks upplifir svima á mismunandi hátt, allt eftir orsökum hans. Í greininni er gerð grein fyrir þessari upplifun og orsökum svimas. Sjá nánar hér. Yfielitt lagast sviminn, án þess að gripið sé til aðgerða.  En hvernig er best að bregðast við ef menn finna fyrir svima?

Leggjast niður ef mikill svimi

Rólegar hreyfingar, standa varlega upp

Hvílast

Drekka vökva

Forðast kaffi og áfengi

 

Hvenær skal leita aðstoðar?

Þú hefur áhyggjur

Heyrnarskerðing fylgir í kjölfarið

Máttminnkun er í andliti eða limum

Mikill höfuðverkur kemur í kjölfarið

Sjónskerðing fylgir í kjölfarið

Svimi fer ekki eða er endurtekinn

Þú varðst fyrir höfuðáverka

 

Finna næstu heilsugæslustöð og bráðamóttöku hér

 

 

Ritstjórn júlí 26, 2022 14:11