Íslensku Jazzkonurnar koma saman á sínum árlegu jólatónleikum í Salnum laugardaginn 12. desember og að þessu sinni verður stórstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson sérstakur gestur þeirra. Óhætt er að fullyrða að samvinna þessara dásamlegu söngvara færir jólin inn í hjörtu þeirra sem á munu hlýða. Jazzkonurnar eru þær Kristjana Stefáns, Rebekka Blöndal, Gulla Ólafs, Silva Þórðar og Sigrún Erla.
Á tónleikunum munu söngkonurnar syngja öll sín uppáhalds jólalög ásamt kvartett Vignis Þórs Stefánssonar og svo segja þær brosandi að Palli verði skrautið á toppnum.

Jazzkonur: Gulla Ólafs, Kristjana Stefáns, Sigrún Erla, Rebekka Blöndal og Silva Þórðar. (Ljósmyndari: Ari Páll Karlsson)
Nýr gestasöngvari á hverju ári
Þessi hópur kvenna, nánast óbreyttur, hélt sína fyrstu tónleika fyrir fimm árum. Þá hafði covidfárið verið með hreðjartak á okkur öllum, ekki síst listafólki því viðburðir þar sem margir komu saman voru bannaðir svo tónleikahald var úr sögunni. Þegar covid fárinu létti var listafólkið að springa og þær Kristjana og Rebekka hittust og ákváðu að efna til heiðurstónleika Ellu Fitzgeralds. Í upprunalega hópnum var Ragnheiður Gröndal með en þegar hún fór til annarra starfa buðu þær Silvu Þóðardóttur inn í hópinn sem hefur verið óbreyttur síðan. Þá tóku þær upp nafnið Jazzkonur og segja hlæjandi frá því að það hafi verið svo mikið af jazzmönnum að troða upp um allt að þær lögðu til mótvægi.
„Við fáum alltaf nýjan gest á hverju ári og það hefur áhrif á lagavalið sem er alltaf mjög spennandi,“ segja þessar jazzkonur og tilhlökkunin skín úr andlitum þeirra. „Nú er það Palli Hjálmtýs og með honum koma auðvitað allt aðrir straumar en með öðrum gestasöngvurum sem hafa komið fram með okkur. Hann hefur gert ofboðslega fallega jólatónlist sjálfur en nú er hann að stíga inn í okkar ramma,“ segir Kristjana. „Palli hefur auðvitað sungið jazz töluvert þótt hann hafi farið meira inn á popplínuna í seinni tíð. Við Palli kynntumst til dæmis upp úr 1990 þegar ég flutti til Reykjavíkur en þá vorum við að syngja saman jazz á Blúsbarnum á Laugaveginum. Síðan höfum við unnið mikið saman og það var ekki mikið mál að fá hann til að syngja með okkur núna.“
Og nú er spurningin hvort þessi hópur muni láta vaða og flytja: „Geta ekki allir verið gorgeous“ í jólabúningi!
Með þeim söngdífunum verður kvartett Vignis Þórs Stefánssonar píanó, Þorgrímur Jónsson kontrabassi, Magnús Trygvason Eliassen trommur og Andrés Þór Gunnlaugsson gítar
Tónleikarnir verða laugardaginn 12. desember og hefjast kl.20:00 og eru um 2 klst. með hléi.







