Töfrar bókasafna

Lestur er því sannkallaður læknisdómur fyrir sálina og það hefur verið vitað allt frá því að bókasafnið í Alexandríu opnaði dyr sínar fyrir fróðleiksþyrstum. Aristóteles talaði um að lestur væri alsherjarhreinsun, catharsis, hvorki meira né minna. Harmleikir gengdu því hlutverki að hreinsa okkur af eigingjörnum tilhneigingum og auka samlíðan okkar með öðrum. Í samfélagi þar sem sífellt meira er krafist af einstaklingum og þau viðhorf ríkja að menn eigi að bjarga sér sjálfir veitir sannarlega ekki af slíku. Þess vegna eru almenningsbókasöfn svo mikilvæg.

Auglýsing

Almenningsbókasöfn opnuðu fólki aðgang að heimi sem áður var þeim lokaður. Þekkingu sem fram að því hafði verið haldið fyrir hina auðugu og valdamiklu. Víða byrjuðu bókasöfn sem lestrarfélög. Fólk safnaði peningum og keypti bækur sem gengu á milli félaganna. Smátt og smátt breyttist þetta í söfn sem allir höfðu aðgang að og voru styrkt af hinu opinbera.

En áður en til þess kom voru bókasöfn nær eingöngu í klaustrum, á heimilum auðmanna og tengd skólum. Þangað fékk almenningur ekki að koma. Bókasafn Saint Catherine klaustursins við rætur Sinai fjalls er það elsta í heiminum í dag. Þar er að finna safn gamalla handrita en aðeins Vatikanið á stærra og veglegra safn slíkra. Árnastofnun kemst auðvitað ekki einu sinni á blað í samanburðinum en íslensku handritið eru eigi að síður einstök.

Bókasöfn heimsins

Stærsta bókasafn í heimi er breska þjóðarbókasafnið, British Library. Þar er að finna170-200 milljónir titla. Næststærst er bandaríska þingbókasafnið, Library of Congress en titlar þar eru 170 milljónir. Talsverður munur er milli safnsins í öðru sæti og þess í því þriðja en í Shanghai Library er að finna 56 milljónir titla. Talað er um titla í þessu sambandi vegna þess að stundum eru til fleiri en eitt eintak af hverri bók en þau eru ekki öll talin heldur gildir bókarheitið eða titillinn bara einu sinni.

Í Varsjá er að finna mesta fjölda bókasafna per mann í heiminum. Það eru 11, 5 bóksöfn á hverja 100.000 íbúa. Pólverjar eru greinilega bókaunnendur. En fast á eftir fylgja Seoul og Brussel en þar eru 11 bókasöfn á hverja 100.000 íbúa. Tokýó á hins vegar metið þegar kemur að útlánum en þar voru 111,9 milljónir bóka teknar að láni síðastliðið ár.

Skemmtilegar staðreyndir um bókasöfn

Hæsta sekt fyrir að skila ekki bók fékk Emily Cannellos-Simms þegar hún skilaði bókinni Days and Deeds árið 2002. Upphæðin nam 345,14 dollurum en Emily fann bókina heima hjá móður sinni 47 árum eftir að hún var tekin að láni eða í apríl 1955. Sektargreiðslur fyrir vanskil á bókum voru tvö sent á dag.

Fólk sem hefur gaman af að lesa lýsir sjálfu sér oft sem bókaormum og aðrir taka sér einnig gjarnan þetta orð í munn. Flestir halda að þetta sé bara skemmtileg myndlíking en svo er ekki. Það kann kannski að koma einhverjum á óvart en bókaormar eru raunverulega til og þeir éta lím og pappír í kjölum bóka. Í bókasöfnum má oft finna gamlar bækur þar sem er að finna merki um át þeirra. Brúna bletti, raufar og holur í síðurnar. Þetta eru lirfur nokkurra tegunda skordýra, bjalla, næturfiðrilda og kakkalakka. Þótt okkur finnist ósköp sætt að tala um bókaorma er ekkert sætt við hvernig þeir stórskemma oft gamlar og verðmætar bækur.

Í portúgalska bókasafninu Library Biblioteca Joanina býr hópur af leðurblökum. Þeim er sleppt lausum hverja nótt til að veiða þau skordýr sem koma sér fyrir meðal bókanna. Þetta óvenjulega en áhrifaríka hreingerningateymi hefur hjálpað mikið við að varðveita bækur safnsins óskemmdar. Mannlegir bókaormar eru hins vegar óhultir enda á ferð á daginn þegar leðurblökurnar sofa.

Tóma bókasafnið undir fótum manna

Í Berlín er að finna áhrifamikið listaverk, Tóma bókasafnið. Því var komið fyrir undir Bebelplatz árið 1995 og því var ætlað að vera ævarandi minnisvarði um bókabrennur nasista á torginu 10. maí 1933. Höfundur þess er ísraelski höggmyndasmiðurinn og skúlptúristinn Micha Ullman.

Tölvuskjár í stað leðurbands

Nú á dögum eru bækur neysluvara og ekki þykir þörf á að umgangast þær öðruvísi en kjöthakk eða snyrtivörur. Þær er keyptar, lesnar og jafnvel fleygt. Að safna bókum eða endurselja gamlar bækur er hugsanlega að verða úrelt iðja. Ungt fólk sækir flestar sínar bækur á bókasöfn eða á rafræn söfn. Bækur í hillu á heimili eru ekki lengur öruggt merki um að þar búi bókmennta- og menningarfólk. Hversu miklu magni af bókum hefur verið hlaðið inn í kyndilinn á borðinu er betri vísbending.

Fátt er skemmtilegra en að ráfa um bókasöfn. Velta við bókum, lesa útdráttinn aftan á kápunni og kíkja inn í eintökin. Á bókasafninu birtist heill heimur sköpunar. Skáldsögur, leikrit, ljóð og ritgerðarsöfn er hvarvetna að finna en auk þess má enginn láta fram hjá sér fara hið stórkostlega fjölbreytta úrval kennslubóka af ýmsu tagi. Hægt er að læra að flísaleggja, byggja hús, sauma, prjóna eða hvað eina sem nöfnum tjáir að nefna. Þetta eru glæsilega myndskreyttar bækur og öll vinna virðist hlægilega auðveld á myndunum. Fyrir utan að kenna mönnum að vinna flókin verk á einfaldan hátt eru þessar bækur uppspretta frábærra hugmynda. Þær hafa einnig þann kost að hvetja til endurvinnslu og endurnýtingar ýmissa efna er falla til á heimilum.

Einhver vitur maður benti á að í raun væri óþarft að kenna börnum annað en lestur því eftir  það væri þeim í raun allir vegir færir. Öll sú þekking er safnast hefur saman í bókum frá árdögum ritlistar er svo yfirgripsmikil og innan seilingar í nútímasamfélagi að hver sá sem kærir sig um getur menntast með því einu að heimsækja reglulega bókasafn. Auk þess er vert að benda á að í dag eru söfnin einnig menningarmiðstöðvar og þangað má sækja upplifanir í tónlist, myndlist, leiklist, fræðslu og umræður.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.