Tengdar greinar

Ísland gegnum augu franskra vísindamanna

„Glöggt er gests augað“ er yfirskrift sýningar sem opnuð verður á Sjóminjasafninu í Reykjavík föstudaginn 30. maí kl. 16. Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, mun opna sýninguna.

Efni sýningarinnar eru ferðir franskra vísindamanna til Íslands árin 1835 og 1836. Inngangsspurningin er: Hvernig gat dularfullt hvarf fransks herskips valdið straumhvörfum í sögu íslensku þjóðarinnar?

Í maí 1835 steig franski herlæknirinn og ævintýramaðurinn Paul Gaimard á land í Reykjavík. Hingað var hann kominn í leit að skipinu umrædda La Lilloise, en uppgötvaði í staðinn land og þjóð sem hann tók ástfóstri við.

Íslandsleiðangur Gaimards, skipaður einvala liði fræði- og listamanna, er umfangsmesti vísindaleiðangur sem nokkru sinni hefur verið sendur til Íslands erlendis frá. Árin 1835 og 1836 rannsakaði hópurinn og skrásetti menningu, mannlíf og náttúru á þessari afskekktu eyju. Ferðalagið hófst í höfuðstaðnum Reykjavík og þaðan lá leiðin vítt og breitt um landið við krefjandi aðstæður.

Niðurstöðurnar birtust í 12 bókum, þar af fjórum myndabókum, sem eru ómetanleg heimild um Ísland á 19. öld. Þær áttu eftir að hafa veruleg áhrif á ímynd landsins út á við og viðhorf Íslendinga til eigin menningararfs.

Í lofkvæði sínu „Til herra Páls Gaimard” spáir þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson (1807-1845) því að Ísland muni lengi muna þennan heiðursmann sem efldi með þjóðinni stolt og sjálfstæðisþrá. En varð raunin sú?

Að sýningunni standa nemendur í námskeiði á vegum Hagnýtrar menningarmiðlunar við Háskóla Íslands, í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur. Sérstakur ráðgjafi sýningarinnar er Sumarliði Ísleifsson, doktor í sagnfræði og höfundur bókarinnar Í Fjarska norðursins. Sýningin hlaut styrk úr safnasjóði.

Safnið er á tveimur hæðum og er aðgengi fyrir hreyfihamlaða gott, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Næsta stoppistöð strætó heitir Grandagarður (1 mín. gangur).

Ritstjórn maí 28, 2025 07:00