Sumar bækur eru bestar í sólskini

Sumar bækur eru sumarbækur. Það er eiginlega ekki hægt að hugsa sér neitt skemmtilegra en að velja sér lesefni til að hafa með sér í sumarfríið. Þetta mega ekki vera of dapurlegar sögur, ekki of flóknar eða krefjandi og alls ekki of langar. Þess vegna er fullkomið að grípa spennusögur eða notalegar ástarsögur því slíkar bókmenntir stytta stundirnar í löngum flugferðum, eru eins og hressandi drykkur í sterkri sól á ströndinni og einmitt það sem best er að sofna út frá á kvöldin.

Ekki hægt annað en að hlæja upphátt

Þær Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hafa tekið höndum saman og skrifað alveg hreint dásamlega glæpasögu Morð og messufall. Þær stöllur eru þekktar fyrir barnabækur sínar en Nærbuxnaverksmiðjan, Blokkin á heimsenda, Mömmuskipti og Kollhnís eru með bestu íslensku barnabókum sem út hafa komið á þessari öld. Þeim bregst ekki bogalistin í þessari nýju tegund bókmennta sem þær reyna sig við að þessu sinni. Hér eru  yndislegar persónur, bráðfyndnir orðaleikir og dásamleg kímni en jafnframt spenna og áhugaverð og flókin flétta þar sem margt kemur á óvart í lokin.

Sif mætir í atvinnuviðtal í kirkju í Grafarholti. Hún er nýútskrifaður guðfræðingur en hefur enn ekki hlotið vígslu. Séra Reynir, presturinn á staðnum, er í leit að æskulýðspresti sér til aðstoðar þótt vandséð sé í fyrstu hvers vegna hann þarf á slíkum að halda vegna þess að í kirkjunni starfar óvenjulega ráðagóður og útsjónarsamur kirkjuvörður. Þegar snarpur jarðskjálfti ríður yfir í miðju viðtali og kirkjuvörðurinn finnst látinn í kjölfarið afræður séra Reynir að gefa Sif tækifæri til að reyna að stíga í hans spor og halda áfram hans mörgu verkefnum. Fljótlega er Sif hins vegar komin á kaf í rannsókn morðsins og leit að ungum dreng úr sókninni sem er horfinn.

Það er eiginlega ekki hægt að lesa þessa bók án þess að skella upp úr nokkrum sinnum. Þótt persónur séu vissulega ýktar er ansi margt þarna að finna sem fólk getur samsamað sig við og sumir þessir karakterar óþægilega kunnuglegir.

Hinn ósigrandi einfari

Lee Child skrifaði 25 bækur um Jack Reacher á ríflega tuttugu árum og hefur selt yfir 100 milljón eintök af sögunum um hann. Nú hefur yngri bróðir hans, Andrew Child, bæst við sem meðhöfundur og eftir því sem bræðurnir segja er ætlunin að hann taki við og haldi kyndlinum logandi nú þegar Lee hefur hugsað sér að draga sig í hlé. Fyrsta bókin sem þeir skrifa saman er Útvörðurinn.

Þrátt fyrir að þetta sé í fyrsta sinn sem Andrew er skráður meðhöfundur er hann alls ekki núna fyrst að ganga inn í ritunarferlið. Lee segir að hann hafi frá fyrstu tíð lesið yfir handritin og gefið honum nótur og gagnrýni í kjölfarið. En engu að síður er spennandi að vita og reyna að skynja sem lesandi hvort Jack Reacher hafi eitthvað breyst við það nýr aðili er farinn að hamra lyklaborðið.

Sagan gerist í bæ rétt fyrir utan Nashville í Tennessee. Jack Reacher nær að koma í veg fyrir að manni sé rænt úti á götu. Þetta verður svo til þess að hann ræður sig öryggisvörð hjá viðkomandi en Rusty Rutherford er tæknimaður og upp úr dúrnum kemur að allt tölvukerfi bæjarins liggur niðri eftir gagnaárás og að maðurinn sem Reacher bjargaði gegndi stöðu upplýsingatæknistjóra plássins. Einhverjir fleiri rotnandi fiskar liggja þarna einnig undir steini því á eftir honum er rússneskur gangster.

Góðu fréttirnar eru þær að venjulegur lesandi finnur lítinn mun á þessum Reacher og hvernig hann birtist í fyrri bókunum. Hann er sem fyrr maður fárra orða, kýs frekar aðgerðir en spjall en með vel stillta réttlætiskennd, ávallt á bandi lítilmagnans og það er fátt sem hann ræður ekki við. Stórskemmtilegur húmor er hins vegar það sem bjargar Reacher-bókunum frá að vera algjör klisja og formúluskrif. Plottið eða fléttan er alltaf úthugsuð, með hinum og þessum flækjum og útúrsnúningum en allt fellur svo vel saman í lokin að hægt er að leggja frá sér bókina með ánægjuandvarpi.

Yndislegar persónur og frábær breskur húmor

Richard Osman þekkja Bretar vel því hann hefur um árabil verið þáttastjórnandi hjá BBC. Hans þekktasta verk er án efa spurningaþátturinn Pointless þar sem fólk keppist við að sýna þekkingu sína á því sem fæstir muna eða vita. Hann sýnir þar mjög vel hversu skemmtilega kímnigáfu hann hefur en hún kemur ekki síður fram í bókum hans um Fimmtudagsmorðklúbbinn og nú er hann farinn að skrifa um nýtt teymi spæjara, ekki síður áhugavert, í bókinni We Solve Murders.

Aðalpersónan Amy starfar hjá fyrirtæki sem leigir út lífverði fyrir þá ríku og frægu. Hún er stödd í Suður-Karólína-fylki í Bandaríkjunum að líta eftir Rosie D’Antonio, frægum metsöluhöfundi sem rússneskur mafíósi hefur hótað lífláti eftir að hún byggði karakter í einni bóka sinna á honum þegar hún gerir sér ljóst að einhver er að reyna að koma höggi á hana og vinnuveitanda hennar. Þrír áhrifavaldar hafa verið myrtir, allir í næsta nágrenni við staði sem Amy er stödd á í það sinnið og augljóst að ætlunin er að gera hana tortryggilega og jafnvel koma á hana sök. Þegar samstarfsmaður hennar í þessu verkefni reynir að drepa hana ákveður Amy að rannsaka málið og hún verður að taka Rosie með sér því hún er ekki örugg ein. Og auðvitað leitar Amy einnig til tengdaföður síns sem hún treystir fullkomlega en Steve er lögreglumaður á eftirlaunum sem kærir sig alls ekki um ferðalög en flækist samt víða um heiminn í viðteitni til að hjálpa tengdadóttur sinni og metsöluhöfundinum að komast að hinu sannar.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Ritstjórn júní 17, 2025 07:00