Hér eru nokkur góð ráð fyrir þá sem eru að hugsa um að létta sig og þar skipar svefninn stóran sess. Flestir þekkja þau raunar þessi ráð en það er alltaf gott að rifja þau.
Svefn
Svefn gefur þér orku til að brenna fleiri kalóríum yfir daginn. Fólk sem sefur innan við sex tíma á hverri nóttu er 27 prósent líklegra til að bæta á sig en þeir sem sofa lengur. Sé svefninn styttri en fjórir tímar eru líkurnar komnar í 67 prósent.
Morgunmatur
Borðaðu prótín og næringarríkan morgunnmat sem inniheldur heil korn og ávexti. Það heldur insúlíninu í jafnvægi allan morguninn og kemur í veg fyrir að þú borðir of mikið síðdegis.
Borðaðu oftar
Við ólumst upp við að borða þrjár máltíðir á dag en nú er kominn tími til að breyta því. Borðaðu smærri skammta og oftar. Það hjálpar þér við að léttast þar sem þú finnur síður til svengdar og ert þar af leiðandi ólíklegri til að borða of mikið.
Gefðu þér tíma
Gefðu þér að minnsta kosti hálftíma til að borða hverja máltíð. Það tekur heilann um tuttugu mínútur að ákveða að nóg sé komið. Það að drekka vatn fyrir mat er góð leið til að hægja á þér en ýmsar rannsóknir hafa sýnt fram á að þeir sem drekka tvö glös af vatni fyrir máltíðir innbyrða að meðaltali um 40 kalóríum minna yfir daginn en ella.
Drekktu kaffi
Já, kaffi er gott fyrir þig en þá er ekki átt við kaffi með sykri, gervisætu, mjólk rjóma, sýrópi eða öðrum íblöndunarefnum heldur svart kaffi tvisvar á dag og ekkert múður.
Tyggðu tyggigúmmí
Sykurlaust tyggigúmmí getur hjálpað til við þyndgarminnkunina. Það leysir hormóna úr læðingi sem tilkynna heilanum að seddu sé náð
Aukabiti í vinnunni
Taktu daglega með þér tvo litla nestispakka í vinnuna eins og ávöxt og fitulitla mjólkurvöru til dæmis kostasælu, sykurlausa jógúrt og svo framvegis.
Dökkt súkkulaði
Ekki grípa hvaða súkkulaði sem er, við erum að tala um dökkt súkkulaði með a að minsta kosti 70 prósent kakóinnihaldi og þinn daglegi skammtur er smár, aðeins fá grömm.
Teldu skrefin
Göngur koma þér ekki aðeins í betra form, þær geta dregið úr heilahrörnun. Kauptu þér skrefamæli og reyndu að ganga að minsta kosti tíuþúsund skref á dag að jafnaði.
Drekktu meira vatn
Við innbyrðum miklu fleiri kalóríur úr sykruðum vökvum en við höldum. Diet gosdrykkir geta aukið löngun til að borða sykraðan kalóríuríkan mat og diet drykkir geta einnig ruglað getu líkamans til að áætla hæfilega neyslu hitaeinga í hverri máltíð þannig að við borðum of mikið.
Borðaðu við borð
Rannsóknir hafa leitt í ljós að það að matast við borð fær þig til að borða hægar sem gefur heilanum tíma til að átta sig á því hvenær nóg er komið sem svo aftur leiðir til þess að þú borðar minna. Notaðu hóflega stóra matardiska, það er einföld leið til að hafa stjórn á matarskammtinum.
Vigtaðu þig
Ekki óttast vigtina á meðan þú ert að léttast. Vigtaðu þig vikulega, það er besta leiðin til að fylgjast með því hvernig þér gengur. Mundu bara að vigta þig á sama tíma sólarhringsins.