Fyrsta bókin um múmínálfana, Pípuhattur galdrakarlsins, kom út árið 1968. Við eignuðumst hana ekki strax á mínu æskuheimili svo að ég taldi mig vaxna upp úr slíkum bókmenntum þegar mamma hóf að lesa þær fyrir litlu systur mínar, samt hlustaði ég stundum og jú, þetta var vissulega gaman og ekki spillti rödd mömmu og hvað hún hafði gaman af að lesa fyrir börn. Eftir að pípuhatturinn rataði inn á heimilið fór þeim smám saman að fjölga múmínálfabókunum og börnunum sem mamma las fyrir. Eitt og eitt tíndust þau í heiminn börnin okkar systra og þau fengu öll að njóta. Þess vegna greip ég andann á lofti þegar ég las þennan yndislega texta í Dóttir myndhöggvarans: „Á meðan eldurinn logar tökum við fram stóra hægindastólinn. Við slökkvum ljósið í vinnustofunni, setjumst fyrir framan eldinn og hún segir: Einu sinni var lítil stelpa sem var svo hræðilega falleg og mömmu hennar þótti svo hræðilega vænt um hana … Þannig eiga að allar sögur að byrja. Blíð og róleg rödd í hlýju myrkrinu, maður horfir inn í glæðurnar og hefur ekkert að óttast. Heimurinn úti fyrir kemst ekki að okkur. Hvorki nú né nokkru sinni.“ (Dóttir myndhöggvarans bls. 26.)
Hvernig er hægt annað en að tárast og ekki bara vegna þess að mér birtist ljóslifandi myndin af mömmu með barn í fanginu að lesa um múmínálfa og ég heyrði blíða röddina í rökkrinu, heldur vegna þess að svona skrifa bara snillingar og það er heldur enginn aukvisi sem heldur um penna þýðandans. Mikið er ég þakklát Gerði Kristnýju fyrir að færa okkur fleiri bækur Tove Jansson og gera það svona listavel. Það er mannbætandi að lesa þessa bók og þetta er ein af þessum skínandi bókmenntaperlum sem maður geymir og yljar sér við reglulega.
Dóttir myndhöggvarans er safn nítján smásagna. Þær eru allar sagðar út frá sjónarhóli lítillar stúlku. Hún hefur lifandi og fjörugt ímyndunarafl, er framvæmdaglöð og hikar ekki við að leggja hart að sér þegar hún telur mikið í húfi. Þótt fullorðna fólkið sé í ákveðinni fjarlægð og séð með augum barnsins dylst ekki að tengsl hennar við foreldrana eru djúp og náinni. Þetta er listamannaheimili og margt öðruvísi en gerðist og gekk á öðrum heimilum. Litla stúlkan er heilluð af náttúrunni og hún er henni uppspretta ánægju og ógnar. Það er ekki hægt annað en opna hjarta sitt fyrir henni og hleypa henni inn. Hver einasta saga hittir lesandann beint í hjartastað.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







