Það á að gefa börnum brauð er yfirskrift fjölskylduviðburðar á vegum Borgarsögusafns sem fram fer í Viðey sunnudaginn 24. nóvember kl. 13:30. En þá mun Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans í Reykjavík, kenna gestum réttu handtökin við laufabrauðsgerð.
Að hnoða hveitideig og fletja út í þunnar kökur sem síðan eru skornar út og steiktar er einn af elstu og sérstæðustu jólasiðum þjóðarinnar, en í elstu heimildum frá 18. öld er fjallað um laufabrauðið sem sælgæti Íslendinga. Metnaðurinn við gerð þess fyrr á tímum var jafnvel svo mikill að þeir sem sköruðu fram úr í listfengi voru lánaðir á milli bæja.
Gestir eru hvattir til að fjölmenna út í Viðey og taka með sér laufabrauðsjárn og hnífa til útskurðar en einhver áhöld verða einnig á staðnum. Brauðin verða steikt á staðnum fyrir þá sem það vilja. Heyrst hefur að jólasveinarnir eigi það til að renna á laufabrauðslyktina í Viðey og koma með glaðning í poka!
Í Viðeyjarstofu verður hægt að kaupa gómsætar veitingar við allra hæfi.
Tíu laufabrauð í öskju kosta 2.250 krónur.
Nauðsynlegt er að skrá sig á videyjarstofa@videyjarstofa.is.
Ferjan siglir til Viðeyjar frá Skarfabakka klukkan 13:15, 14:15, 15:15.
Ferjukostnaður:
Fullorðnir 16 ára og eldri: 1.600 kr.
Börn 7-15 ára 800 kr.
Eldri borgarar og öryrkjar 1.450 kr.