Það verður sannkölluð leikhúsveisla á Sögulofti Landnámssetursins í september þegar tvær vinsælar sýningar snúa aftur á svið: Salka – ástin og dauðinn og Mr. Skallagrímsson.
Salka – ástin og dauðinn er einleikur Unnar Aspar Stefánsdóttur, byggður á fyrri hluta Sölku Völku eftir Halldór Laxness. Unnur Ösp leiðir áhorfendur inn í magnaða veröld Sölku og kallar fram eftirminnilegar persónur sögunnar í návígi við áhorfendur. Tónlist úr plötusafni Halldórs Laxness fléttast inn í sýninguna og skapar einstaka umgjörð um þessa sterku sögu um ástina, lífið og dauðann. Sýningin var frumsýnd á Söguloftinu í febrúar á þessu ári í samstarfi Landnámssetursins og Þjóðleikhússins og hefur hlotið afar góðar viðtökur. Salka fékk þrjár tilnefningar til Grímu verðlauna – besta handrit – besta leik og besta sýning.
Mr. Skallagrímsson þarf vart að kynna fyrir þeim sem fylgst hafa með leikhússögu Landnámssetursins. Benedikt Erlingsson frumsýndi þennan óborganlega einleik um Egil Skallagrímsson við opnun Landnámssetursins árið 2006 og sló sýningin rækilega í gegn. Benedikt hlaut tvær Grímur fyrir verkið, fyrir besta handrit og besta leik í aðalhlutverki. Hér segir hann Egils sögu á sinn einstaka hátt – af krafti, húmor og þeirri einstöku frásagnargleði sem hefur gert sýninguna að einum af eftirminnilegustu viðburðum Söguloftsins. Það er því full ástæða til að hlakka til septembermánaðar í Borgarnesi þegar Salka Valka og Egill Skallagrímsson taka aftur yfir Söguloftið – tvær stórar persónur íslenskra bókmennta í tveimur einstökum leiksýningum.







