Virkniþing – aukin vellíðan og bætt heilsa

Virkniþing fyrir eldra fólk verður haldið í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á morgun föstudaginn 19. september frá klukkan 10.00 til klukkan 13.00. Á Virkniþinginu verða haldin áhugaverð erindi auk þess verður boðið upp á kynningu á þeirri fjölbreyttu heilsueflandi þjónustu og afþreyingu sem eldra fólki í Reykjavík stendur til boða.

Íþróttavika Evrópu

Dagana 23.-30. september er Íþróttavika Evrópu eða „#BeActive“, sem er alþjóðlegt hvatningarátak um hreyfingu og bætta heilsu. Það er því vel við hæfi að halda Virkniþing og stuðla á þann hátt að félagslegri virkni eldra fólks í Reykjavík og bættum lífsgæðum þeirra. Nánari upplýsingar á Beactive Ísland.

Dagskrá:

Fundarstjóri: Harpa Þorsteinsdóttir, lýðheilsufulltrúi Reykjavíkurborgar

Að eldast í Reykjavík

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri

Verum virk

Willum Þór Þórsson, forseti íþrótta- og ólympíusambands Íslands

Það er pláss – Erindi um einmanaleika

Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri Tölum saman hjá Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Gleðidans

Auður Harpa danskennari stýrir gleðidansi

Heimsóknavinir með hund

Heimsóknavinir með hund mæta í Ráðhúsið. Verkefnið er á vegum Rauða krossins og felst í að heimsóknavinir fara ásamt eigin hundi og hitta einstaklinga eða hópa á heimilum þeirra, á hjúkrunarheimilum eða öðrum stöðum þar sem óskað er eftir hundaheimsóknum. Hlutverk heimsóknavina með hund er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju.

Kynningar á afþreyingu og virkni sem eldra fólki stendur til boða í Reykjavík

Meðal þeirra sem munu kynna fjölbreytta vetrardagskrá eru: Samfélagshús, félagsmiðstöðvar, íþróttafélög, bókasöfn, sundlaugar, heilsugæslan og fleiri aðilar.

Gestum gefst meðal annars tækifæri á að prófa farþegahjól sem verða á staðnum.

Hvetjum fólk til að fjölmenna. Boðið verður upp á kaffi og bakkelsi.

Öll velkomin!