Vorflug á veirutímum

Vorflug á veirutímum er yfirskrift sýningar Jóhönnu V Þórhallsdóttur myndlistar- og söngkonu sem opnar á sunnudaginn 18. apríl nk. í Gallerí Göngum við Háteigskirkju. Opnunin verður klukkan 14-17 og verða allar sóttvarnarreglur virtar. Yfirskrift sýningarinnar er Vorflug á veirutímum en Jóhanna er mikil vorkona. Hún er fædd í hrútsmerkinu og á einmitt afmæli á opnunardaginn. Tónlistin leikur stórt hlutverk þegar hún málar og þessi verk eru mörg, t.a.m. unnin við margs konar tónlist, bæði jazz og klassík. Þetta er 7. einkasýning Jóhönnu hér á landi, en síðast tók hún þátt í samsýningu í Bad Reichenhall í suður Þýskalandi. Jóhanna lauk meistaranámi hjá prófessor Heribert Ottersbach í Þýskalandi í nóvember árið 2019. Áður hefur Jóhanna lokið námi hjá Markúsi Lüpertz í Þýskalandi að afloknu námi hér heima. Jóhanna hefur stjórnað sýningum í Gallerí Göngum frá árinu 2018. Sýningin er opin á virkum dögum kl 10-16 og um helgar eftir samkomulagi og verður það auglýst sérstaklega á feisbókinni og á heimasíðu kirkjunnar. www.hateigskirkja.is Á opnuninni verður boðið uppá léttar veitingar og eru allir hjartanlega velkomnir!

 

 

Ritstjórn apríl 16, 2021 08:39