Alþingi samþykkir lög um hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félag og húsnæðismálaráðherra sem felur í sér að öryrkjum verður tryggð ævilöng aldursviðbót og að almennt frítekjumark ellilífeyris hækki.

„Hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega og ævilöng aldursviðbót eru breytingar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem boðar aðgerðir til að uppræta fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Með frumvarpinu eru stigin mikilvæg skref í átt að réttlátara samfélagi,“ sagði Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra í framsöguræðu sinni í þinginu.

Almennt frítekjumark ellilífeyrisþega

Í frumvarpinu er lagt til að almennt frítekjumark ellilífeyrisþega hækki. Frítekjumarkið nær til allra tekna eldri borgara, annarra en atvinnutekna.

Í dag er frítekjumarkið 36.500 kr. á mánuði en í frumvarpinu er lagt til að það hækki upp í 41.500 kr. á mánuði nú um áramótin, hækki aftur ári síðar og endi loks í 60.000 kr. á mánuði þann 1. janúar 2028.

Á ársgrundvelli þýðir þetta að í dag má ellilífeyrisþegi hafa 438.000 kr. í tekjur á ári án þess að ellilífeyrisgreiðslur hans frá Tryggingastofnun byrji að lækka. Þegar breytingarnar verða að fullu komnar til framkvæmda mun viðkomandi hins vegar geta haft 720.000 kr. í tekjur á ári án þess að greiðslurnar lækki. Munurinn þarna á milli er 282.000 kr.

„Hækkun frítekjumarksins mun skila tekjuaukningu til mikils meirihluta eldri borgara,“ sagði ráðherra í framsöguræðunni. „Við lögðum áherslu á það við stjórnarmyndun að eldri borgarar fengju raunverulegar kjarabætur og þessi aðgerð er hluti af þeim kjarabótum.“

Skráning upplýsinga, endurhæfing og fleira

Í frumvarpinu eru einnig lagðar til aðrar breytingar, meðal annars sem varða nýja örorku- og endurhæfingarkerfið.

Þannig er lagt til að Tryggingastofnun starfræki upplýsingakerfi samhæfingarteyma og haldi skrá með upplýsingum um framvindu viðurkenndrar meðferðar og endurhæfingar einstaklinga. Skránni er ætlað að tryggja nauðsynlega yfirsýn yfir þjónustu og stuðla að samfellu í þjónustu og greiðslum. Persónuauðkenni í skránni verða dulkóðuð.