Kynning

 Vilja vera samstíga í að móta framtíðina

Margir telja að þriðja æviskeiðið sé það besta. Þá hefur fólk þroskann til að dvelja í núinu, hefur lokið flestum þeim skyldum sem lífið leggur því á herðar og getur notið uppskeru ævistarfsins. Hljómar vel og ætti að vera einfalt en líkt og með flest annað í tilverunni ekki alveg klippt og skorið. Í sumum tilfellum eru þessi ár nefnilega frekar fyrirkvíðanleg en tilefni tilhlökkunar. En það hægt að undirbúa þennan hluta ævinnar vel og tryggja að hann verði einmitt eins og maður vill og það gerðu hjónin Magnea Gísladóttir og Egill Heiðar Gíslason því þau skráðu sig í Magnavita-nám einmitt í þeim tilgangi.

Hvers vegna ákváðuð þið að hefja nám til undirbúnings eftirlaunaárunum?

„Við heyrðum af þessu námi þegar það var sett á laggirnar og fannst það þá strax mjög áhugavert.  Við höfðum ekki tök á því að skrá okkur í námið fyrr en s.l. haust og sjáum alls ekki eftir því. Okkur fannst mikilvægt að við færum bæði í námið til þess að vera á sömu blaðsíðu og vera samstíga í að móta framtíðina.  Bæði höfum við áhuga á að efla okkar þekkingu, takast á við nýja hluti og kynnast nýju fólki,“ segir Magnea.

Magnavita er ársnám þar sem fólki er kennt að setja sér markmið og finna leiðir til að njóta uppskerunnar á þriðja æviskeiðinu og er kennt í Háskólanum í Reykjavík. Hver var helsti ávinningurinn við að taka þetta nám?

„Það var að fara yfir sitt lífshlaup, læra að meta sína styrkleika, átta sig á hvar veikleikarnir leynast og styrkja þá  og kynnast nýju fólki á jafningjagrunni,“ segir Egill. „Einnig fannst okkur áhugavert allt námsefnið sem var farið í og átta sig enn betur á hvaða þættir skipta mestu máli á þriðja æviskeiðinu. Allir kennarar eru framúrskarandi og búa yfir svo mikilli þekkingu og komu námsefninu skýrt og skilmerkilega frá sér á lifandi og skemmtilegan hátt. Við fengum allt efnið sem við getum farið yfir aftur. Svo var námið allt svo skemmtilegt og frábærir samnemendur. Það var alltaf tilhlökkun að mæta í skólann.“

Mikilvægt að undirbúa starfslokin vel

Við höfum alltaf gott af að skoða okkur sjálf og gera okkur grein fyrir hvert við viljum stefna. Fæstir staldra við reglulega til að taka sér tíma í að horfa inn á við og gera sér grein fyrir hvað þá langar mest að gera. Finnst ykkur þið betur undirbúin núna undir að hætta að vinna?

„Það er í okkar huga mikilvægt að undirbúa þessi tímamót vel. Í náminu öðlast maður góðan vegvísi til að takast á við þennan nýja raunveruleika sem blasir við. Finna nýjan vettvang, ný verkefni og minna sig á að hafa gaman í lífinu og njóta þess stóra og smáa. Góð félagsleg tengsl efla heilsu okkar og hamingju,“ segir Magnea.

Er eitthvað skipulagt um hvað þið ætlið að gera næst?

Við höfum sett upp áætlun yfir þau viðfangsefni sem við viljum setja í forgang og eru í okkar huga að auka lífsgæði og gera líf okkar lifandi og skemmtilegt.“

Eigið þið einhver áhugamál sem þið hlakkið til að rækta betur núna?

„Ferðalög til nýrra og framandi staða er ofarlega á blaði auk þess að vera opin fyrir nýjum tækifærum í félagsstarfi og að prófa eitthvað nýtt með nýju fólki,“ segja þau bæði. Fannst ykkur þið kynnast nýjum hliðum á ykkur sjálfum í gegnum Magnavita-námið?

„Fyrst og fremst að við gerum okkur betur grein fyrir okkar styrkleikum og betri sjálfsmynd. Við erum sannfærð um það að við höfum gert margt rétt á okkar lífsgöngu en það má alltaf stækka lífið og við erum opin fyrir nýjum sóknarfærum. Framtíðin er björt og við höfum nú ráðrúm til að láta drauma okkar verða að veruleika okkur sjálfum og öðrum til heilla. Námið er fjölbreytt, áhugavert og skemmtilegt. Við breytum ekki fortíðinni en við ráðum því hvernig við viljum hafa  framtíðina,“ segja þau að lokum og eru einnig sammála um að það hafi verið ákveðið ævintýri að setjast á skólabekk að nýju og kynnast nýjum og spennandi möguleikum.