Nokkrar konur á miðjum aldri stofnuðu hljómsveitina Frænkurnar og njóta þess ríkulega að koma saman og spila. Allt byrjaði þetta með því að ein úr hópnum, Addý trommari, hóaði saman nokkrum frænkum og vinkonum sem voru til í að prófa að láta draum vinkonu sinnar um að stofna hljómsveit rætast en þetta var fyrir rúmum tveimur árum. Sumar höfðu einhvern bakgrunn í hljóðfæraleik en aðrar ekki. Allar nutu þess að syngja og sumar höfðu verið í kórum. Þær eru allar á miðjum aldri og hittast alltaf seinnipartinn til að æfa. Nú standa yfir æfingar fyrir ,,gigg“ í Silfurtúni við Snorrabraut og svo fyrir Menningarnótt í haust þar sem þær munu koma fram í Iðnó ásamt fleiri hljómsveitum en hver hljómsveit fær þar 30 mínútur á sviðinu.
Nafn hljómsveitarinnar er komið til af því að Arndís/Addý hringdi fyrst í nokkrar frænkur sínar og því fékk sveitin vinnunafnið Frænkurnar. Þær drógu með sér nokkrar vinkonur og nú eru þetta átta meðlimir, ein fjölmennasta kvennahljómsveit landsins um þessar mundir, sem eru ekki allar endilega blóðtengdar. Þær mæta nú alltaf einu sinni í viku og finna sig virkilega í hljóðfæraleiknum og segja að spilamennskan gefi sér svo mikið að líf þeirra væri sannarlega fátæklegra án þess. Svo stóð reyndar alltaf til að finna annað nafn en eins og gengur festist þetta nafn á sveitinni. Því verður varla breytt úr þessu því hljómsveitin Frænkurnar hafa nú getið sér gott orð. Meðal annars á Menningarnótt í Iðnó þar sem þær hafa komið fram en líka við önnur tækifæri.
Ástríðan rekur okkur áfram og úr verður eitthvað stórkostlegt.
Ragga hljómborðsleikari segir að Addý hafi hringt í sig á sínum tíma af því hún hafi vitað að Ragga hefði áhuga á að spila á jembey trommu. ,,Ég hélt nú ekki að ég ætlaði að fara að spila í hljómsveit komin á þennan aldur,“ segir Ragga. „En Addý hætti ekki fyrr en ég lét undan og mætti með trommuna mína á æfingu,“ segir hún skellihlæjandi. Síðan þróaðist það þannig að hljómborðið tók við. ,,Og hér erum við enn. Hún sagði mér endilega að koma með konuna mína með en Sóley hafði einhvern tímann lært svolítið á gítar og við mættum rosalega óöruggar. Við vitum fullvel að aðrar hljómsveitir eru líklega samsettar hæfari hljóðfæraleikurum en markmið okkar er ekki að vera bestar heldur gera vel og njóta þess sem við erum að gera,“ segja þær“.
Næla sér í leiðbeinendur af og til
Ragga og Sóley eru í badmintonhópi sem kemur saman tvisvar í viku og ein í þeim hópi er tónlistarkennarinn Þórunn Elfa Stefánsdóttir við tónlistarskóla Kópavogs. Ragga mætir reglulega til hennar til að fínpússa hæfni sína á hljómborð og Sóley í gítarleik og raddþjálfun. „Addý sagði mér að ég væri léleg í vinnukonugripunum svo ég neyddist til að bæta mig,“ segir Sóley í gríni og er hæstánægð með þá ýtni vinkonu sinnar.
Rúna gítarleikari er búin að vera með frá upphafi og segir að þessi tónlistariðkun gefi sér gífurlega mikið. „Ég lærði á gítar, tók miðstig og hef eitthvað verið að gutla í gegnum tíðina,“ segir Rúna. „Og svo núna eftir að ég er komin í hljómsveit þykir mér gaman að fara inn á Youtube og bæta mig þannig,“ segir hún og brosir. „Hljóðfæraleikur heldur manni sannarlega lifandi og það er alltaf tilhlökkun að mæta á æfingar og spila með þessum frábæru konum,“ bætir hún við.
Voru saman í ljóða-pönkhljómsveit
Búbba söngkona, var í Mótettukórnum á sínum tíma og hún og Addý voru saman í pönkhljómsveit í nokkur ár. Þegar sú hljómsveit hætti tók Addý til sinna ráða og stofnaði Frænkurnar. „Ég ákvað að stofna þessa hljómsveit til þess eins að hafa gaman og njóta“ segir hún. „Við spilum bara lög sem okkur þykja skemmtileg og viljum að fólk fái dansfiðringinn við að hlusta.“ Svo fengum við professional söngkonu og þá þurftum við að herða okkur svolítið,“ segir hún og hlær. „Hún er sko alveg pró þessi,“ bæta þær við og benda á Rósalind. „Og þá var farið að æfa fyrir alvöru og hér erum við enn og skemmtum okkur konunglega,“ bætir Arndís við og brosir.
Rósalind, söngkona Frænkanna, þekkti enga meðlimi hljómsveitarinnar þegar Addý hafði samband við hana og bauð henni á æfingu, eftir að hafa fengið ábendingu og hún sló til. Hún hefur verið í nokkrum hljómsveitum, sungið í óperukór og er nú í Kór Lindakirkju, allt þetta er rosalega góð þjálfun og frábær félagsskapur. Hún lærði á hljóðfæri sem barn en svo var það rétt fyrir fertugt að hún fann löngunina og þorið til að láta drauminn rætast að verða söngkona í bandi þar sem hún var alltaf syngjandi en of feimin til að taka af skarið. Hún fór svo rétt fyrir fimmtugt í Tónlistarskóla FÍH, sem hún segir hafa verið mjög lærdómsríkt og skemmtilegt.
Rósalind segir það hafa verið mikil vonbrigði og mikla eftirsjá af samnemendum þegar nýjar reglur borgarinnar tóku gildi og aðeins ungt fólk gat hafið nám í skólanum. „Skólinn var ekki samur eftir það” segir Rósalind ákveðin.
Guðrún Helga bassaleikari segist hafa verið orðin fimmtug þegar hún uppgötvaði að bassaleikur væri eitthvað fyrir sig. Hún er núna að læra á bassa í Gítarskóla Reykjavíkur en þar gilda aðrar reglur en í tónlistarskólunum sem borgin styrkir.
Byrjaði ekki að spila á trommur fyrr en fimmtug
Addý segir að hún hafi verið búin að tuða um trommusett í þrjátíu ár og loks fengið sett í gjöf þegar hún varð fimmtug. „Þetta var 2010 en þá fékk ég símtal frænku minni Boggu og Rúnu, sem sögðu mér að ég væri að fara að spila með þeim á Borginni eftir tvo mánuði. Það var hljómsveit sem var kölluð Frú Sigurlaug. Sú sveit átti að koma saman til að spila á einu „giggi“ og það vantaði trommara. Ég sagði nei nokkrum sinnum en Bogga frænka hlustaði náttúrlega ekkert á það. Ég neyddist því til að finna mér kennara og fór að lokum í fimm tíma í tónlistarskólanum í Kópavogi. Við spiluðum giggið á Borginni og gerðum það skammlaust,“ segir Addý og hlær.
Kristín eða Stína bongó eins og hún er jafnan kölluð, ber nafn með rentu og setti tóninn með þéttu slagverki. Hún byrjaði að læra á slagverk 15 ára og ferðast til Kúbu, Usa og Svíþjóðar til að ná sér í þekkingu, ásamt því að hafa tekið 1. stig á bassa fyrir 30 árum. Stína hefur tekið þátt í mörgum tólistarviðburðum og starfaði eingöngu sem slagverksleikari í nokkur ár. En fyrir utan slagverkið er Stína liðtæk að leysa af á trommusettinu og á bassanum ef þess þarf. Stína segir að án efa væri hægt að létta líf margra miðaldra og einnig eldri borgara ef fleirum væri gert kleift að taka þátt í tónlistariðkun, því sem konurnar í þessum hópi eru svo lánsamar að vera þátttakendur í.
Tónlistin svo mikilvæg fyrir allan aldur.
Þessar frábæru konur eru sammála um að ráðamenn á Íslandi skilji án efa ekki hversu mikilvæg tónlistariðkun fullorðinna er. Áhugi fólks á tónlist dvínar ekki með árum. Það er svo mikilvægt að ýta undir tónlistarkennslu og -iðkun fullorðna.
Út úr skúrnum
Hermann Sæmundsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, er sá sem sér um verkefnið „Út úr skúrnum“ og kom að því að hljómsveitir, líkt og Frænkurnar, hafa fengið aðstöðu til æfinga í húsnæði borgarinnar. Reykjavíkurborg á skúrinn við Kelduleið þar sem Frænkurnar fá aðstöðu til æfinga í ásamt öðrum hljómsveitum. Það má eiginlega orða það þannig að hann sé hljómsveitarstjórinn.
„Skilningur Hermanns á mikilvægi tónlistarinnar fyrir þennan stækkandi hóp í samfélagi okkar er ómetanlegur,“ bæta Frænkurnar við.
Rokkhöllin
„Þegar við tókum við þessu húsi fyrir fimm árum síðan var þetta hreysi bæði að utan sem innan en nú er þetta hreysi að utan en rokkhöll að innan,“ segir Hermann og brosir.
„Það má segja að ég hafi verið nálægt tónlist á einn eða annan hátt í langan tíma. Það var svo árið 2003 um haustið að ég hafði verið í mikilli vinnutörn þar sem ég var í vinnu alla daga og líka helgar að ég kom heim til konu minnar rétt undir jól og sagði ég þyrfti að finna út úr því að gera líka eitthvað annað en vera bara í vinnunni. Hún hvatti mig þá til þess að láta drauminn um tónlistarnám rætast. Það varð úr og ég dreif í því. Ég hafði samband við mág minn sem er tónlistarmaður, keypti mér gítar og fór í gítartíma. Þar byrjaði leitin að þessu lífi sem ég lifi í dag og sé ekki eftir vendingunni sem varð á lífi mínu þá,“ bætir Hermann við hæstánægður með hlutskipti sitt.
Viðtal við Hermann mun birtast á vef Lifðu núna næsta föstudag.
Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.







