Týnd í frumskógi tjáknanna

Síminn það ómissandi samskiptatæki hefur tekið miklum breytingum og er orðinn bæði fjölhæfari og flóknari en áður. Nú er hann notaður, ekki bara til að tala í, heldur einnig til að fylgjast með öðrum, mæla eigin heilsu, skoða sig um á netinu og skrifa skilaboð. Og til að auðvelda mönnum lífið bjóðast yfir 3.000 tjákn notendum til að senda sín skilboð fljótt og vel. En ekki eru allir jafnvel talandi á tjáknmál og það getur boðið heim alvarlegum misskilining ef menn reyna að nota tjákn en þekkja ekki merkingu þeirra. Við komumst að því að ávextaborðið í tjáknunum er sérlega varasamt, já, eiginlega sannkallaður skerjagarður.

  • Sítróna 🍋 — Þessi fallegi ávöxtur er bæði hollur og góður en á tjáknmáli merkir hann annað hvort að lífið hafi sent sendanda skilaboðanna erfiða áskorun eða að viðkomandi sé súr út þann sem hann er að tala við. Yngra fólk notar sítrónuna oft með broskarli og þá er verið að segja að viðkomandi sé í góðu stuðu en eitthvað skyggi á.
  • Banani 🍌— Hann er oft sendur með myndum, myndböndum eða tenglum á efni á internetinu sem ekki er óhætt að opna innan um samstarfsfélagana. Viðkomandi ætti að forða sér eitthvert prívat áður en hann opnar þau. Hann getur líka gefið til kynna að sendandinn sé giftur og því ekki til daðurslegt spjall. Bláberið á hinn bóginn segir að þú sért einhleyp/ur og hafir bara gaman að slíku.
  • Kirsuber 🍒 — Í orðabók tjáknanna eru kirsuberin sögð tákn fyrir konubrjóst eða til marks um að einhver sé enn hreinn sveinn eða jómfrú.
  • Ferskja 🍑 — Safaríkur og sætur ávöxtur á borð við ferskju tákna ávalan, velmótaðan og ríkulegan rass. Sá sem sendir ferskju er því sennilega að lýsa yfir ánægju sinni með vaxtarlag viðtakandans.
  • Ananas 🍍 — Já, sætur að innan en broddóttur að utan. Hann segir: Samband okkar er flókið, ég er á báðum áttum.
  • Eggaldin 🍆 — Þessi holli og ágæti ávöxtur tákna typpi á tjáknmáli.
  • Avókadó 🥑 — Ef þú ert hluti af parasambandi getur þú sent avókadóið til marks um að þú eigir þér betri helming. Séu hins vegar blikur á lofti í sambandinu er hægt að senda fýlukarl eða eitthvað annað með til að gefa til kynna að eitthvað sé ekki í lagi í sambandinu.
  • Melóna 🍈 — Þetta tjákn sendir þau skilaboð að þú sért til einhvers konar kynferðislegar athafnir.
  • Vatnsmelóna 🍉 — Hún er mun saklausari því táknar einfaldlega að allt sé í góðu, við erum svöl.
  • Jarðarber 🍓— Þau eru daðursleg og segja, mér líst á þig til í áframhaldandi samræður
  • Vínber 🍇 — Þau lýsa gleði og glaumi. Eru iðulega send þegar menn eru að segja frá skemmtilegri veislu eða öðrum líflegum skemmtunum.
  • Appelsína 🍊 — Táknar orku og mikið líf og fjör.
  • Kíví 🥝 — Sá nýsjálenski ávöxtur segir að eitthvað sé alveg sérstakt og hamingja ríki.
  • Tómatur 🍅 — Hann er oft sendur þegar verið að tala um heilbrigðan lífsstíl og gott mataræði.
  • Grænt epli 🍏 segir: ég er trúlofuð/aður.

En þótt ávextirnir séu sérlega varasamir eru aðrar matartegundir ekki fyllilega hættulausar. Pylsur senda stundum tilvísun í typpi karlmanna og annars konar skyndibiti hefur sömuleiðis iðulega einhvers konar kynferðislegan undirtón sem menn ættu að vera meðvitaðir um áður en þeir senda slík tjákn í skilboðum til vina sinna.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.